Mörg fyrirtćki í Grindavík telja sig geta starfađ áfram

  • Fréttir
  • 6. mars 2024

Í nýjum niðurstöðum viðhorskönnunar Maskínu kemur fram að mörg fyrirtæki í Grindavík telja sig geta starfað áfram í bænum. 

Grindavíkurbær fékk Maskínu til að vinna könnun á meðal fyrirtækja um áhrif náttúruhamfaranna á starfsemi þeirra. Spurt var m.a. um umfang reksturs fyrir og eftir náttúruhamfarinar 10. nóvember og hver séu áform um áframhaldandi rekstur.

Skýrsla Maskínu um útkomu könnunarinnar er hér í hlekk.

Í ítarlegri könnun kemur margt áhugavert fram. Á meðal þess er:
•    Ríflega þriðjungur fyrirtækja hefur engan rekstur í dag. Innan við 20% eru með fullan rekstur.
•    Meirihluti fyrirtækja áforma að halda áfram rekstri í Grindavík.
•    Fyrirtæki í ferðaþjónustu koma  verst út, 75% þeirra eru með engan rekstur.
•    Eftir því sem fyrirtæki eru stærri því líklegra er að þau haldi umfangi starfsemi sinnar nálægt því sem fyrir var.
•    Þegar spurt er um ástæður þess að rekstur fyrirtækis sé skertur eða liggi niðri svara flestir að það sé vegna aðgangslokana (66,7%) og svo jafn margir að það sé vegna bilaðra innviða (40,9%) og verkefnaskorts (40,9%).
•    Um helmingur fyrirtækja hefur notfært sér stuðning Vinnumálastofnunar til greiðslu laun.
•    Innan við 15% gera ráð fyrir að breytingar verði á eignarhaldi fyrirtækja sinna.
•    Helmingur fyrirtækja telja sig geta verið með rekstur í Grindavík þrátt fyrir að náttúruhamförum sé ekki lokið.
•    Tæp 60% geta haldið áfram starfsemi þó íbúar séu ekki með búsetu í bænum.
 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. maí 2025

Alli á Eyri í Kvikunni

Fréttir / 30. apríl 2025

Rýmingarflautur prófađar í dag kl. 11

Fréttir / 15. apríl 2025

Vorferđ FebG í Ţórsmörk 21.maí 2025

Fréttir / 15. apríl 2025

Alli á Eyri og páskaegg í Kvikunni

Fréttir / 14. apríl 2025

Sundlaugin lokuđ í dag - Opiđ á morgun

Fréttir / 11. apríl 2025

Ný stuđningsúrrćđi fyrir Grindvíkinga