Leigutorgiđ opnar kl. 14:00

  • Stuđningur og ráđgjöf
  • 15. desember 2023

Fram kemur á vef Stjórnarráðs Íslands að klukkan 14 í dag verði opnað leigutorg á Ísland.is fyrir íbúa Grindavíkur. Þar verður hægt að skoða leiguíbúðir sem skráðar hafa verið í kjölfar auglýsingar þar sem óskað var eftir húsnæði til að leysa tímabundið úr húsnæðisþörf Grindvíkinga. Margir hafa brugðist við, en á torginu eru um 150 eignir auglýstar til leigu á Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu og víðar. Áfram verður tekið við skráningum á leigueignum á Ísland.is.

Samningar sem gerðir verða á vettvangi torgsins eru á milli leigusala og leigjenda. Ríkið veitir íbúum Grindavíkur sérstakan húsaleigustyrk í samræmi við lög þar um.

Aðgerðin er hluti af húsnæðistuðningi ríkisins við Grindvíkinga, sem einnig samanstendur af launastuðningi, leigustyrk og áður tilkynntum kaupum ríkisins á fasteignum.

Er horft til þess að með þessum samstilltu úrræðum verði hægt að stuðla að því að húsnæðisþörf Grindvíkinga verði leyst eins fljótt og vel og hægt er.

Torgið verður aðeins opið þeim sem voru með skráð lögheimili í Grindavík 10. nóvember. Hægt verður að komast inn á torgið á Ísland.is/Grindavik. Rafræn skilríki þarf til að komast inn á torgið. 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 15. apríl 2025

Vorferđ FebG í Ţórsmörk 21.maí 2025

Fréttir / 15. apríl 2025

Alli á Eyri og páskaegg í Kvikunni

Fréttir / 14. apríl 2025

Sundlaugin lokuđ í dag - Opiđ á morgun

Fréttir / 4. apríl 2025

Opiđ til Grindavíkur

Fréttir / 3. apríl 2025

Ađgengi takmarkađ til Grindavíkur

Fréttir / 1. apríl 2025

Eldgos hafiđ rétt norđur af Grindavík