Orkan setur upp varaaflstöđ í Grindavík

  • Almannavarnir
  • 9. nóvember 2023

Varaaflstöð er tilbúin við Orkustöðina í Grindavík verði rafmagnslaust á svæðinu. Varaafl verður þá hægt að virkja og tryggja þannig eldsneytissölu til viðskiptavina. Mikill viðbúnaður er á Reykjanesskaga vegna mögulegs eldgoss og hafa prófanir staðið yfir í vikunni á varaafli í Grindavík.

„Óvissan er mikil fyrir íbúa á þessu svæði og erum við því sátt við að geta lagt okkar af mörkum. Prófanir gengu mjög vel og virknin til staðar sem þýðir að viðskiptavinir geta leitað til Orkunnar allan sólarhringinn komi til þess að það verði rafmagnslaust á svæðinu.“ segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar. 

Vegna varaafls er Orkustöðin í Grindavík skilgreind sem neyðarstöð fyrir viðskiptavini á svæðinu. 
 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 31. október 2025

Allra heilagra messa í Grindavíkurkirkju

Fréttir / 30. október 2025

Ari Trausti og Elliđi Vignisson í Kvikunni

Fréttir / 17. október 2025

Seljabót lokađ viđ Ránargötu

Fréttir / 14. október 2025

Breyttur opnunartími íţróttamannvirkja

Fréttir / 14. október 2025

Grindavík – saman í sókn

Fréttir / 2. október 2025

Leirstund međ Dóru Sigtryggs

Fréttir / 2. október 2025

Jákvćđ samskipti og gleđi í Kvikunni