Fundur 544

  • Bæjarstjórn
  • 1. nóvember 2023

544. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 31. október 2023 og hófst hann kl. 16:00.

Fundinn sátu:
Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti, Birgitta H. Ramsay Káradóttir, aðalmaður,
Hjálmar Hallgrímsson, aðalmaður, Helga Dís Jakobsdóttir, aðalmaður,
Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, aðalmaður og Gunnar Már Gunnarsson, aðalmaður. 

Einnig sátu fundinn:
Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri. 

Fundargerð ritaði:  Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Dagskrá:

1.      Hafnarfjarðarkaupstaður - umsögn á lýsingu aðalskipulagsbreytingar vegna Iðnaðarsvæðis I4 - 2309104
    Til máls tók: Ásrún. 

Hafnarfjarðarkaupstaður hefur óskað eftir umsögn Grindavíkurbæjar á lýsingu fyrir breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 - 2025 vegna Iðnaðarsvæðisins I4, nr. 0593/2023. 

Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á fundi sínum þann 16. október sl. og gerði ekki athugasemd við lýsinguna og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar. 

Bæjarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu skipulagsnefndar.
         
2.      Fráveita Grindavíkurbæjar - viðaukabeiðni vegna fjárfestingar 2023 - 2309033
    Til máls tók: Ásrún. 

Óskað er viðauka vegna eignfærðra framkvæmda hjá fráveitu Grindavíkurbæjar. Framkvæmdir ársins 2023 eru þriðji áfangi áætlunar sveitarfélagsins til ársins 2031 í heildarlausn sveitarfélagsins í fráveitumálum, með það að markmiði að allt skólp frá þéttbýli sveitarfélagsins fari í gegnum hreinsistöð. 

Óskað er viðauka að fjárhæð 64.206.000 kr. og að viðaukinn verði fjármagnaður með auknum gatnagerðargjöldum að upphæð 26.492.000 kr. og að upphæð 37.714.000 kr. með lækkun á handbæru fé. 

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina. 

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.
         
3.      Beiðni um viðauka - Kaup á köldu vatni - 2310054
    Til máls tók: Ásrún. 

Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun vatnsveitu Grindavíkur fyrir árið 2023 vegna kaupa á köldu vatni, sbr. meðfylgjandi minnisblaði. Fjárhæð beiðninnar er 14.385.000 kr. og lagt er til að fjármögnun verði með lækkun á handbæru fé. 

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina. 

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.
         
4.      Beiðni um viðauka vegna kjarasamninga ofl. - Þjónustumiðstöð - 2309069
    Til máls tók: Ásrún. 

Lögð fram beiðni um viðauka vegna launaliða á þjónustumiðstöð. Viðaukabeiðni er samtals 7.942.000 kr. sem sundurliðast þannig: 
Laun 6.384.000 kr. og launatengd gjöld 1.558.000 kr. 
Fjármögnun viðaukans verði með lækkun á bókhaldslykli 21611-1119 - Lagt til hliðar vegna kjarasamninga. 

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina. 

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.
         
5.      Beiðni um viðauka 2023 - Reiknaðir liðir - 2310055
    Til máls tók: Ásrún. 

Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2023 að fjárhæð 33.263.500 kr. sem snýr að ýmsum reiknuðum liðum í fjárhagsáætlun ársins 2023, sbr. framlagða sundurliðun. 

Lagt er til að fjármögnun verði með lækkun ýmissa bókhaldslykla skv. sömu sundurliðun. 

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina. 

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.
         
6.      Beiðni um viðauka - Félagsmiðstöðin Þruman - 2310047
    Til máls tóku: Ásrún og Hjálmar. 

Óskað er eftir viðauka á árið 2023 á launaliði Þrumunnar vegna veikindaleyfis og ferðar erlendis með ungmennaráð að fjárhæð 2.547.000 kr. Óskað er eftir að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé. 

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina. 

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.
         
7.      Endurskoðun á skólastefnu Grindavíkurbæjar - 2309086
    Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður og Helga Dís. 

Fræðslunefnd leggur til skipan um sameiginlegan stýrihóp að vinnu skólastefnu Grindavíkurbæjar og heildrænnar læsisstefnu bæjarins. Lagt er til að stýrihópurinn verði skipaður af fulltrúum frá skólastofnunum, fræðslunefnd, foreldrum og fulltrúa frá skólaskrifstofu. 
Gera þarf ráð fyrir fjármagni í vinnu hópsins í fjárhagsáætlun 2024. 

Bæjarstjórn samþykkir erindið samhljóða og hefur samþykkt fjármagn inn í drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2024.
         
8.      Sérstakur húsnæðisstuðningur - Breyting á reglum - 2305120
    Til máls tók: Ásrún. 

Breytingar á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins. Lagt er til að þær taki gildi 1.11.2023. 

Bæjarstjórn samþykkir reglurnar samhljóða. 
         
9.      Tækifærisleyfi - Tímabundið áfengisleyfi - Herrakvöld knd. - 2310107
    Til máls tóku: Ásrún, 

Körfuknattleiksdeild U.M.F.G. sækir um tímabundið áfengisleyfi vegna herrakvölds í íþróttamiðstöðinni í Grindavík 3. nóvember 2023. 

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða veitingu leyfisins.
         
10.      Fjárhagsáætlun 2024-2027 - Grindavíkurbær og stofnanir - 2307077
    Til máls tók: Ásrún. 

Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árin 2024-2027 er lögð fram til fyrri umræðu. 

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa áætluninni til síðari umræðu í bæjarstjórn.
         
11.      Netöryggi - vöktun netkerfa og útstöðva - 2310110
    Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Gunnar Már, Hjálmar, Hallfríður, Birgitta Hrund, Birgitta Rán, bæjarstjóri og Helga Dís. 

Til fundarins mætti tölvuumsjónarmaður Grindavíkurbæjar og gerði grein fyrir málinu og svaraði fyrirspurnum. 

Lögð fram greinargerð frá Þekkingu um tölvuöryggi. 

Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 3.500.000 kr. vegna endurbóta á netkerfi bæjarins. 
Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með hækkun á áætlun staðgreiðslu. 

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða viðaukabeiðnina. 
         
12.      Fundargerðir - Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 2023 - 2302009
    Til máls tók: Ásrún. 

Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga númer 934, dags. 29. september sl. er lögð fram til kynningar.
         
13.      Fundargerðir - Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 2023 - 2302009
    Til máls tóku: Ásrún og Hallfríður. 

Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga númer 935, dags. 16 október sl. er lögð fram til kynningar.
         
14.      Fundargerðir - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 2023 - 2302049
    Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, bæjarstjóri, Gunnar Már, Birgitta Rán og Birgitta Hrund. 

Fundargerð 794. fundar stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, dags. 11. október sl. er lögð fram til kynningar.
         
15.      Fundargerðir - Kalka sorpeyðingarstöð 2023 - 2303065
    Til máls tóku: Ásrún, Helga Dís, Hallfríður, Birgitta Hrund, bæjarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs. 

Fundargerð 550. fundar Kölku, dags. 12. september sl. er lögð fram til kynningar.
         
16.      Fundargerðir 2023 - Svæðisskipulag Suðurnesja - 2301125
    Til máls tók: Ásrún. 

Fundargerð 41. fundar Svæðisskipulag Suðurnesja, dags. 14. september sl. er lögð fram til kynningar.
         
17.      Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2023 - 2301117
    Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Hrund, bæjarstjóri, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Birgitta Rán, Helga Dís og Hallfríður. 

Fundargerð 303. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja, dags. 25. september sl. er lögð fram til kynningar.
         
18.      Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2023 - 2301117
    Til máls tók: Ásrún. 

Fundargerð 304. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja, 9. september sl. er lögð fram til kynningar.
         
19.      Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2023 - 2301117
    Til máls tóku: Ásrún, Helga Dís, Birgitta Hrund, Birgitta Rán og Hallfríður. 

Fundargerð 305. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja, dags. 23. október sl. er lögð fram til kynningar. 
         
20.      Fundargerðir 2023 - Reykjanesfólkvangur - 2306072
    Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri og Hjálmar. 

Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs, dags. 15. júní sl. er lögð fram til kynningar.
         
21.      Aðalfundur Fullltrúaráðs EBÍ - 2310078
    Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og bæjarstjóri. 

Fundargerð 18. aðalfundar fulltrúaráðs Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands, dags. 6. október sl., ásamt gögnum vegna fjárfestingastefnu og útgreiðslu ágóðahlutar til sveitafélaganna lögð fram til kynningar. 
         
22.      Bæjarráð Grindavíkur - 1654 - 2309029F 
    Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri og Hallfríður. 

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
         
23.      Bæjarráð Grindavíkur - 1655 - 2310006F 
    Til máls tóku: Ásrún, Helga Dís, Hallfríður og Hjálmar. 

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
         
24.      Bæjarráð Grindavíkur - 1656 - 2310014F 
    Til máls tók: Ásrún. 

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
         
25.      Bæjarráð Grindavíkur - 1657 - 2310022F 
    Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Birgitta Hrund, Hallfríður, Birgitta Rán og Helga Dís. 

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
         
26.      Skipulagsnefnd - 126 - 2309031F 
    Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri og Helga Dís. 

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
         
27.      Skipulagsnefnd - 127 - 2310015F 
    Til máls tók: Ásrún. 

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
         
28.      Fræðslunefnd - 135 - 2309017F 
    Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Hrund, Helga Dís, Birgitta Rán og Hallfríður, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Hjálmar. 

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
         
29.      Fræðslunefnd - 136 - 2310005F 
    Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Rán, Birgitta Hrund og Helga Dís. 

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
         
30.      Hafnarstjórn Grindavíkur - 490 - 2310008F 
    Til máls tóku: Ásrún og bæjarstjóri. 

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
         
31.      Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 77 - 2309030F 
    Til máls tóku: Ásrún, Gunnar Már, bæjarstjóri, Birgitta Hrund, Helga Dís og Hallfríður. 

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
         
32.      Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 78 - 2310019F 
    Til máls tók: Ásrún. 

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
         
33.      50 ára afmælisnefnd Grindavíkurbæjar - 3 - 2309018F 
    Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Hrund og Helga Dís. 

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
         
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:40.


Deildu þessari frétt

AÐRAR FUNDARGERÐIR

Bæjarstjórn / 28. janúar 2025

Fundur 581

Bæjarráð / 21. janúar 2025

Fundur 1675

Afgreiðslunefnd byggingamála / 16. janúar 2025

Fundur 86

Afgreiðslunefnd byggingamála / 5. júlí 2024

Fundur 82

Afgreiðslunefnd byggingamála / 29. maí 2024

Fundur 81

Afgreiðslunefnd byggingamála / 27. maí 2024

Fundur 80

Afgreiðslunefnd byggingamála / 18. apríl 2024

Fundur 79

Afgreiðslunefnd byggingamála / 29. nóvember 2024

Fundur 85

Afgreiðslunefnd byggingamála / 20. nóvember 2024

Fundur 84

Afgreiðslunefnd byggingamála / 26. ágúst 2024

Fundur 83

Afgreiðslunefnd byggingamála / 8. júní 2023

Fundur 73

Afgreiðslunefnd byggingamála / 11. maí 2023

Fundur 72

Innviðanefnd / 16. desember 2024

Fundur 3

Innviðanefnd / 15. janúar 2025

Fundur 4

Bæjarráð / 14. janúar 2025

Fundur 1674

Samfélagsnefnd / 15. janúar 2025

Fundur 4

Bæjarráð / 7. janúar 2025

Fundur 1673

Bæjarstjórn / 17. desember 2024

Fundur 580

Samfélagsnefnd / 11. desember 2024

Fundur 3

Bæjarstjórn / 28. nóvember 2024

Fundur 579

Bæjarráð / 12. nóvember 2024

Fundur 1670, bæjarráð

Innviðanefnd / 18. nóvember 2024

Fundur 2, Innviðanefnd

Bæjarráð / 5. nóvember 2024

Fundur 1669

Bæjarstjórn / 29. október 2024

Fundur 578

Innviðanefnd / 10. október 2024

Fundur 1

Samfélagsnefnd / 16. október 2024

Fundur 1

Bæjarráð / 22. október 2024

Fundur 1668

Bæjarráð / 8. október 2024

Fundur 1667

Bæjarráð / 17. september 2024

Fundur 1666

Bæjarstjórn / 24. september 2024

Fundur 577