78. fundur Afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmála haldinn á skrifstofu byggingafulltrúa, þriðjudaginn 17.október 2023 og hófst hann kl. 10:30.
Fundinn sátu:
Hjörtur Már Gestsson, byggingarfulltrúi, Íris Gunnarsdóttir, lögfræðingur skipulags- og umhverfissviðs, Elísabet Bjarnadóttir, sérfræðingur skipulags- og umhverfissviðs.
Fundargerð ritaði: Hjörtur Már Gestsson, byggingarfulltrúi.
Dagskrá:
1. Spóahlíð 22-30 - Umsókn um lóð - 2310013
Mýrarfell Verktakar ehf. sækja um lóðina Spóahlíð 22-30. Umsókn um lóð samþykkt.
2. Arnarhlíð 1 - Umsókn um lóð - 2310012
Lukasz Robert Szczesnowicz sækir um lóðina Arnarhlíð 1. Umsókn um lóð samþykkt.
3. Hólmasund 2 - Umsókn um byggingarleyfi, - 2309123
Valur Arnarson sækir um fyrir hönd Akrasels ehf. um byggingarleyfi á iðnaðarhúsnæði á lóðinni Hólmasund 2-4 skv. aðaluppdráttum dagsettum 05.10.23 frá Gísla Rafni Gylfasyni Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrðum 2.4.4.gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.
4. Ufsasund 2 - Umsókn um byggingarheimild, - 2310057
Guðni Sigurbjörn Sigurðsson sækir um fyrir hönd Brunavarna suðurnesja um byggingarheimild vegna breytinga innanhúss í Ufsasundi 2. Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarheimild verður gefin út þegar skilyrðum 2.3.8 gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.
5. Hafnargata 8 - Umsókn um byggingarleyfi - 2208081
Þorbjörn hf. sækir um byggingarleyfi vegna Hafnargötu 8 eftir breytingu á deiliskipulagi.
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrðum 2.4.4.gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:20.