Fundur 134

  • Frćđslunefnd
  • 26. október 2023

134. fundur Fræðslunefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, fimmtudaginn 7. september 2023 og hófst hann kl. 16:30.


Fundinn sátu:
Vilhjálmur Ragnar Kristjánsson, formaður,
Eva Lind Matthíasdóttir, varaformaður,
Eva Rún Barðadóttir, aðalmaður,
Auður Arna Guðfinnsdóttir, varamaður,
Snædís Ósk Guðjónsdóttir, aðalmaður,
Jóhanna Lilja Birgisdóttir, deildarstjóri skólaþjónustu 

Einnig sátu fundinn:
Fríða Egilsdóttir, leikskólastjóri,
Inga Þórðardóttir, skólastjóri,
Hulda Jóhannsdóttir, leikskólastjóri,
Kristjana Jónsdóttir, deildarstjóri stoðþjónustu grunnskóla,
Alma Dögg Einarsdóttir, áheyrnarfulltrúi,
Smári Jökull Jónsson, áheyrnarfulltrúi,
Berglind Hrönn Hlynsdóttir, áheyrnarfulltrúi,


Fundargerð ritaði:  Jóhanna Lilja Birgisdóttir, deildarstjóri skólaþjónustu.

Dagskrá:

1.      Störf fræðslunefndar - 2309007
    Farið yfir fundartíma og störf fræðslunefndar. Ákveðið að hafa fastan fundartíma fræðslunefndar fyrsta fimmtudag í mánuði kl. 16:30. Æskilegt er að erindi sem eiga að fara fyrir fund berist deildarstjóra skólaskrifstofu í síðasta lagi viku fyrir fund. 
         
2.      Leikskóli - staðan í upphafi skólaárs 2023-2024 - 2309010
    Leikskólastjórar fóru yfir stöðuna við upphaf skólaárs. Vel hefur gengið að manna stöður leikskólanna. Fjöldi nemenda í leikskólanum Krók eru 102 við upphaf skólaárs. Við upphaf skólaárs eru nemendur 71 í leikskólanum Laut. 

         
3.      Tónlistarskólinn - staðan í upphafi skólaárs 2023-2024 - 2309009
    Skólastjóri tónlistarskóla Grindavíkur fór yfir stöðuna við upphaf skólaárs. Skráðir eru 86 nemendur. 

         
4.      Grunnskóli - Staðan í upphafi skólaárs 2023-2024 - 2309011
    Farið yfir stöðuna við upphaf skólaárs. Fjöldi nemenda í skólanum er sambærilegur samanborið við síðustu ár eða alls 555 nemendur. Vel hefur gengið að mann grunnskólann. Fjöldi barna í Skólaseli eru 105 og verið að ljúka við að manna stöður í Skólaseli. 
         
5.      Staða skólahjúkrunar í Grunnskóla Grindavíkur - 2309013
    Fræðslunefnd lýsti yfir áhyggjum af stöðu skólahjúkrunar í Grunnskóla Grindavíkur sl. vor. Þar sem ekki hafði tekist að ráða í auglýstar stöður hjúkrunarfræðings við skólann. 

Í dag er hjúkrunarfræðingur í 50% stöðu sem skólahjúkrunarfræðingur. Það vantar því að manna 30% stöðugildi. 
         
6.      Skólalóð Grunnskóla Grindavíkur við Ásabraut - 2309012
    Umræða um skólalóðina við Ásabraut og aðstöðu nemenda til leiks. Lagt fram skjal um framtíðarsýn fyrir leikvelli í Grindavík. Í gögnum sem lögð voru fram á fundinum kemur fram að skólastjóri Grunnskóla Grindavíkur hafi leitað til nemenda skólans eftir ábendingum hvað betur mætti fara á lóðum skólans. Flesta ábendingar snúa að lóðinni við Ásabraut. Nemendur kalla m.a. eftir bættri aðstöðu til hreystileikja, leiktækja, klifur og kastala. 

Fræðslunefnd leggur áherslu á að úttekt á núverandi ástandi og hönnun á endurbótum skólalóðarinnar við Ásabraut fari fram og verði sett í forgang. Nefndin vísar málinu til umfjöllunar Frístunda-og menningarnefnd. 
         
7.      Starfsáætlun fræðslunefndar - 2309008
    Lögð fram starfsáætlun fræðslunefndar sem byggir á hlutverki fræðslunefndar. Fræðslunefnd samþykkir framlagða starfsáætlun. 
         


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FUNDARGERĐIR

Afgreiđslunefnd byggingamála / 28. október 2025

Fundur 90

Afgreiđslunefnd byggingamála / 21. júlí 2025

Fundur 89

Afgreiđslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 88

Afgreiđslunefnd byggingamála / 7. apríl 2025

Fundur 87

Bćjarstjórn / 28. október 2025

Fundur 589

Bćjarráđ / 21. október 2025

Fundur 1693

Bćjarráđ / 14. október 2025

Fundur 1692

Innviđanefnd / 8. október 2025

Fundur 11

Bćjarstjórn / 30. september 2025

Fundur 588

Bćjarráđ / 23. september 2025

Fundur 1691

Innviđanefnd / 8. september 2025

Fundur 10

Innviđanefnd / 17. september 2025

Fundur 9

Bćjarráđ / 9. september 2025

Fundur 1689

Bćjarráđ / 2. september 2025

Fundur 1688

Bćjarstjórn / 26. ágúst 2025

Fundur 587

Bćjarráđ / 19. ágúst 2025

Fundur 1687

Bćjarráđ / 15. júlí 2025

Fundur 1686

Bćjarráđ / 2. júlí 2025

Fundur 1685

Bćjarráđ / 18. júní 2025

Fundur 1684

Afgreiđslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 87

Bćjarráđ / 3. júní 2025

Fundur 1683

Bćjarstjórn / 27. maí 2025

Fundur 586

Bćjarstjórn / 20. maí 2025

Fundur 585

Innviđanefnd / 16. maí 2025

Fundur 8

Innviđanefnd / 23. apríl 2025

Fundur 7

Bćjarráđ / 14. maí 2025

Fundur 1682

Bćjarráđ / 7. maí 2025

Fundur 1681

Bćjarstjórn / 30. apríl 2025

Fundur 584

Bćjarráđ / 10. apríl 2025

Fundur 1680

Innviđanefnd / 26. mars 2025

Fundur 6