Fundur 128

  • Frístunda- og menningarnefnd
  • 21. september 2023

128. fundur frístunda- og menningarnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 20. september 2023 og hófst hann kl. 16:00.


Fundinn sátu:
Anna Elísa Karlsdóttir Long, formaður, Irmý Rós Þorsteinsdóttir, varaformaður, Viktor Guðberg Hauksson, aðalmaður, Hulda Kristín Smáradóttir, aðalmaður, Petra Rós Ólafsdóttir, varamaður. 

Einnig sátu fundinn:
Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs. 

Fundargerð ritaði:  Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.

Dagskrá:

1.      Beiðni um endurskoðun á samstarfssamningi Grindavíkurbæjar við UMFG - 2309023
    Klara Bjarnadóttir, formaður UMFG, sat fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Petra Rós vék af fundinum við umræður og afgreiðslu málsins. 

Aðalstjórn Ungmennafélags Grindavíkur óskar eftir því við Grindavíkurbæ að hefja viðræður um endurskoðun á núverandi samstarfssamningi milli Grindavíkurbæjar og Ungmennafélags Grindavíkur sem undirritaður var 31. desember 2019 og gildir til 31. desember 2024. 

Nefndin tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra að afla frekari gagna frá UMFG. 
         
2.      Vinnuskóli Grindavíkurbæjar 2023 - 2301112
    Melkorka Ýr Magnúsdóttir forstöðumaður Þrumunnar og Emilía Ósk Jóhannesdóttir formaður ungmennaráðs sátu fundinn undir þessum lið. 

Minnisblað sviðsstjóra um starfsemi Vinnuskóla Grindavíkurbæjar sumarið 2023 lagt fram. Einnig voru ræddar hugmyndir um starfsemi vinnuskólans sumarið 2024. 
         
3.      Skólalóð Grunnskóla Grindavíkur við Ásabraut - 2309012
    Lögð fram bókun frá 134. fundi fræðslunefndar þar sem óskað er eftir því að frístunda- og menningarnefnd taki ástand skólalóðarinnar við Ásabraut til umræðu. 

Í ár hófst vinna við endurhönnun opinna leiksvæða og skólalóða í Grindavík. Nefndin bindur vonir við þá vinnu og leggur áherslu á að tilögurnar verði kynntar almenningi á undirbúningstímanum. 
         
4.      Sjóarinn síkáti 2023 - 2301013
    Rætt um niðurstöðu íbúakönnunar sem framkvæmd var í kjölfar Sjóarans síkáta í júní og fyrirkomulag hátíðahalda 2024. Nefndin felur sviðsstjóra að auglýsa eftir hverfisstjórum í litahverfunum. 
         
5.      Ástand og nýting Gesthúss - 2309091
    Rætt um framtíðarnýtingu Gesthúss. Nefndin felur sviðsstjóra að óska eftir frekari upplýsingum um ástand hússins og umhverfis þess. 
         
6.      Ljósmyndasafn Grindavíkurbæjar - 2309093
    Rætt um aðgengi almennings að ljósmyndasafni Grindavíkurbæjar. Nefndin felur sviðsstjóra að óska eftir fjármagni til þess að endurnýja vef safnsins í fjárhagsáætlun 2024. 
         
7.      Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023 - 2305100
    Nefndin felur sviðsstjóra að leggja umsóknina fyrir bæjarráð til afgreiðslu.
         
8.      Endurnýjun á samstarfssamningi við Samtökin ´78 - 2309094
    Lögð fram drög að endurnýjuðum samstarfssamningi við Samtökin '78 um fræðslu og ráðgjöf til barna, unglinga og starfsfólks Grindavíkurbæjar. 

Fulltrúar D, B og U lista leggja fram eftirfarandi bókun: 

Fulltrúar D, B og U lista vilja lýsa yfir ánægju með samninginn við Samtökin '78 og áframhaldandi samstarfs. Í ljósi umræðu síðustu misseri í samfélaginu varðandi hinsegin og kynfræðslu í grunnskólum er ekki vanþörf á að halda hinsegin fræðslu áfram sem fjallar um fjölbreytileikann og virðingu fyrir því og mikilvægi þess að vinna gegn fordómum, sem virðist enn viðgangast í samfélaginu. 

Nefndin vísar samningsdrögunum til umfjöllunar í fræðslunefnd. 
         
9.      50 ára afmælisnefnd Grindavíkurbæjar - 2 - 2306015F 
    Fundargerð 2. fundar 50 ára afmælisnefndar Grindavíkurbæjar lögð fram til kynningar. 
         
10.      50 ára afmælisnefnd Grindavíkurbæjar - 3 - 2309018F 
    Fundargerð 3. fundar 50 ára afmælisnefndar Grindavíkurbæjar lögð fram til kynningar.
        


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:20.


Deildu þessari frétt

AÐRAR FUNDARGERÐIR

Bæjarráð / 11. febrúar 2026

Fundur 1702

Bæjarráð / 11. febrúar 2026

Fundur 1702

Bæjarráð / 4. febrúar 2026

Fundur 1701

Bæjarstjórn / 27. janúar 2026

Fundur 592

Afgreiðslunefnd byggingamála / 26. janúar 2026

Fundur 93

Bæjarráð / 20. janúar 2026

Fundur 1700

Innviðanefnd / 19. janúar 2026

Fundur 13

Bæjarráð / 13. janúar 2026

Fundur 1699

Bæjarráð / 6. janúar 2026

Fundur 1698

Bæjarstjórn / 17. desember 2025

Fundur 591

Bæjarráð / 9. desember 2025

Fundur 1697

Afgreiðslunefnd byggingamála / 3. desember 2025

Fundur 92

Bæjarráð / 2. desember 2025

Fundur 1696

Innviðanefnd / 24. nóvember 2025

Fundur 12

Bæjarstjórn / 26. nóvember 2025

Fundur 590

Bæjarráð / 19. nóvember 2025

Fundur 1695

Bæjarráð / 11. nóvember 2025

Fundur 1694

Afgreiðslunefnd byggingamála / 28. október 2025

Fundur 90

Afgreiðslunefnd byggingamála / 21. júlí 2025

Fundur 89

Afgreiðslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 88

Afgreiðslunefnd byggingamála / 7. apríl 2025

Fundur 87

Bæjarstjórn / 28. október 2025

Fundur 589

Bæjarráð / 21. október 2025

Fundur 1693

Bæjarráð / 14. október 2025

Fundur 1692

Innviðanefnd / 8. október 2025

Fundur 11

Bæjarstjórn / 30. september 2025

Fundur 588

Bæjarráð / 23. september 2025

Fundur 1691

Innviðanefnd / 8. september 2025

Fundur 10

Innviðanefnd / 17. september 2025

Fundur 9

Bæjarráð / 9. september 2025

Fundur 1689