Guðbergur Bergsson, rithöfundur, þýðandi og heiðursborgari Grindavíkur lést á heimili sínu í Mosfellsbæ í faðmi fjölskyldu sinnar mánudagskvöld 4. september eftir stutt veikindi.
Guðbergur var tæplega 91 árs að aldri. Hann fæddist í Ísólfsskála í Grindavík 16. október 1932. Eftirlifandi samýlismaður Guðbergs er Guðni Þorbjörnsson, flugmaður og framkvæmdastjóri ARTPRO. Þeir hafa í rúman áratug búið í Mosfellsbæ og Berlín, auk þess að eiga aðsetur í Reykjavík, Grindavík og Madrid. Saman eiga þeir Bengal kettina Pútín og Picasso.
Þau verk sem Guðbergur er höfundur að eru fjölmörg, skáldsögur, ljóð og barnabækur. Æviverk Guðbergs marka djúp spor í bókmenntasögu Íslands og Evrópu en hann var margverðlaunaður fyrir verk sín, bæði þau sem hann samdi sjálfur jafnt sem þýðingar.
Guðbergur lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1955, hélt síðan til náms á Spáni og lauk prófi í spænskum fræðum, bókmenntum og listasögu frá La Universidad de Barcelona 1958.
Síðan fyrstu bækur hans komu út árið 1961, ljóðabókin Endurtekin orð og skáldsagan Músin sem læðist, hafa lesendur mátt hafa sig alla við í ævintýralegu sköpunarverki sem spannar óra vítt svið skáldskapar, þýðinga, fagurfræði, gagnrýni, listfræði og pistla.
Með skáldsögunni Tómasi Jónssyni metsölubók (1966) markaði Guðbergur sér stöðu sem einn helsti módernisti íslenskra bókmennta og jafnframt einn helsti arftaki Halldórs Laxness, Þórbergs Þórðarsonar og Gunnars Gunnarssonar í íslenskum nútímabókmenntum.
Skáldsagan Svanurinn (1991) hefur verið þýdd á fjölda tungumála og ferjaði höfundarverk Guðbergs á svið mikilhæfustu rithöfunda Evrópu. Guðbergur var einnig mikilsvirtur þýðandi spænskra, portúgalskra og suður/rómans-amerískra bókmennta og með þýðingum sínum hefur hann auðgað íslenska menningu með verkum heimsbókmennta á borð við Don Kíkóta eftir Cervantes og Hundrað ára einsemd eftir Gabriel García Márquez.
Búið er að framleiða tvær kvikmyndir byggðar á verkum Guðbergs. Svanurinn sem var frumsýnd árið 2018 og Missir sem verður frumsýnd nú í haust 2023.
Guðbergur hlaut ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir skáldskap sinn og þýðingar, meðal annars bókmenntaverðlaun dagblaðanna, bókmenntaverðlaun DV, Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Svaninn og einnig fyrir skáldævisögu sína Faðir og móðir og dulmagn bernskunnar (1997) og Eins og steinn sem hafið fágar (1998).
Árið 2004 hlaut hann Norrænu verðlaun sænsku bókmenntaakademíunnar og árið 2006 var hann tilnefndur til hinna virtu ítölsku Noninu-verðlauna fyrir Svaninn. Hann var einnig sæmdur Afreksorðu Spánarkonungs og riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu.
Árið 2013 var Guðbergur sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands. Sama ár var Guðbergsstofa opnuð í Kviku, auðlinda- og menningarhúsi Grindavíkur. Guðbergur var heiðursborgari Grindavíkur frá árinu 2004.
Grindavíkurbær sendir fjölskyldu og ástvinum Guðbergs innilegar samúðarkveðjur.
Hér má sjá hluta höfundarverka Guðbergs