Sorphirđa komin á rétt ról

  • Fréttir
  • 31. ágúst 2023

Sorphirðan á tunnum við heimili á Suðurnesjum á að vera komin á áætlun og uppfært dagatal tilbúið fyrir íbúa sem nálgast má hér.  Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Kalka sendi frá sér í gær. Þar segir að innleiðing á nýju flokkunarkerfi úrgangs, þar sem flokkað sé í fjóra flokka við húsvegg, hafi farið mjög vel af stað. Íbúar hafi tekið vel í aukna flokkun og góðar heimtur séu bæði á endurvinnsluefnum og lífrænum eldhúsúrgangi. 

Kalka minnir á að tunnur við heimili séu tæmdar á eftirfarndi hátt:

  • Blandaður úrgangur á 14 daga fresti
  • Lífrænn eldhúsúrgangur á 14 daga fresti
  • Pappír / Pappi á 28 daga fresti
  • Plastumbúðir á 28 daga fresti

Ef íbúar lendi í að tunnur við heimilin fyllist fyrr er bent á að hægt sé að notast við grenndarstöðvarnar fyrir þá flokka sem tekið er á móti þar sem og móttökuplön Kölku, sem taka á móti öllum úrgangi.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. júní 2025

Bundiđ slitlag lagt á Grindavíkurveg

Fréttir / 30. maí 2025

Sjómannadagsmessa í Grindavíkurkirkju

Fréttir / 30. maí 2025

Lokun gatna 31. maí og 1. júní

Fréttir / 22. maí 2025

Götuboltamót Stinningskalda 2025

Fréttir / 21. maí 2025

Sjómannadagshelgin í Grindavík 2025

Fréttir / 19. maí 2025

Ađalfundur knattspyrnudeildar UMFG