Laust starf viđ leikskólann Laut

  • Lautarfréttir
  • 29. ágúst 2023

 

Laust starf við leikskólann Laut

Leikskólakennara , þroskaþjálfa eða annað uppeldismenntað fólk vantar til starfa í leikskólanum Laut í Grindavík sem fyrst.

Um er að ræða 80 % starf, fjórir dagar í viku frá 08:00-16:00, frí fimmta daginn. Einnig er full vinnustytting hjá kennurum í leikskólanum Laut sem er tekin út í heilum dögum dreift yfir skólaárið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Leikskólinn er fjögra  deilda leikskóli fyrir börn frá 18 mánaða - 6 ára. Við erum „Skóli á grænni grein“ og vinnum eftir Uppbyggingarstefnunni – Uppeldi til ábyrgðar. Gleði, hlýja og virðing eru einkunnarorð skólans. Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimasíðu

Menntunar- og hæfniskröfur

Hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Samskiptahæfni
  • Jákvæðni

 

Grindavík er góður bær :) Fjölskylduvænn staður þar sem ungir sem gamlir hafa nóg að sýsla, svo er Grindavíkurbær þekktur fyrir frábært íþróttastarf. Leikskólinn Laut er þekktur fyrir frábæran starfsmannahóp sem er glaðlyndur og samstíga í leik og starfi.

Vakin er athygli á því að ef ekki fæst leikskólakennari kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 420-1160 og 847-9859. Umsóknir berist til leikskólastjóra á netfangið frida@grindavik.is

Endurnýja þarf eldri umsóknir.

 


Deildu ţessari frétt