75. fundur Afgreiðslunefndar byggingarmála haldinn á skrifstofu byggingafulltrúa, föstudaginn 21. júlí 2023 og hófst hann kl. 10:45.
Fundinn sátu:
Hjörtur Már Gestsson, byggingarfulltrúi, Elísabet Bjarnadóttir, starfsmaður skipulags- og umhverfissviðs, Íris Gunnarsdóttir, Lögræðingur skipulags- og umhverfissviðs.
Fundargerð ritaði: Hjörtur Már Gestsson, Byggingarfulltrúi.
Dagskrá:
1. Stamphólsvegur 1 - Umsókn um byggingarheimild - 2307027
Guðni Sigurbjörn Sigurðsson sækir um fyrir hönd Grindavíkurbæjar byggingarheimild fyrir þak á viðbyggingu við Stamphólsveg 1. Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrðum 2.4.4.gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.
2. Ásabraut 2 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 3, - 2307069
Grindavíkurbær sækir um byggingarleyfi vegna breytingar á loftræsikerfi grunnskólans við Ásabraut 2. Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrðum 2.4.4.gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.