Gosstöđvar opnar almenningi um Merardalaleiđ

  • Almannavarnir
  • 11. júlí 2023

Búið er að opna fyrir aðgang almennings að gosstöðvunum. Í tilkynningu frá lögreglu segir að opið sé inn á svæðið frá Suðurstrandarvegi, en ekki frá öðrum vegum eða vegslóðum. Bílum á að leggja á merktum stæðum við Suðurstrandarveg, en ekki í vegkanti Suðurstrandarvegar.

Vert er að vekja athygli á því að gönguleiðin, sem hefur verið kölluð Meradalaleið, er 20 kílómetra löng báðar leiðir. Því er vissara að vera vel búinn og klæða sig eftir veðri.

Leið upp að gosstöðvunum er það sem viðbragðsaðilar kalla Meradalaleið. Gönguferðin hentar alls ekki öllum.

Mikilvægt er að hafa í huga að gossvæðið er hættulegt svæði þar sem aðstæður geta breyst skyndilega.   Lögregla varar fólk við að dvelja nærri gosstöðvunum vegna gasmengunar.  

Hætta eykst þegar vind lægir. Þá geta lífshættulegar gastegundir safnast í dældum og geta reynst banvænar.  

Nýjar gossprungur geta opnast með litlum fyrirvara og glóandi hraun getur fallið úr hraunjaðri og hröð og skyndileg framhlaup orðið þar sem nýjar hrauntungur brjótast fram sem erfitt getur verið að forðast á hlaupum.

Göngumenn klæði sig eftir veðri, nesti sig og gleymi ekki að hafa næga hleðslu á farsímum.  

Ekki er tryggt öryggi farsíma á svæðinu.

Fylgist með vindátt og fréttaflutningi.  Sjá jafnframt upplýsingar á Safe Travel  og á vef Almannavarna  

Akstur utan vega er bannaður.

Ferðamenn eru vinsamlega beðnir um að fara að fyrirmælum viðbragðsaðila.  Fjallið Keilir er inn á merktu hættusvæði.

Spá veðurvaktar um gasdreifingu:

Norðlæg átt, 5-10 m/s, 8-13 á morgun. Gasmengunin berst því til suðurs og gæti hennar orðið vart í m.a. Grindavík og á Suðurstandarvegi.
Mun hægari vindur um tíma í nótt.  Gasmengun gæti dreifst víða kringum upptakasvæðið í fyrramálið.

Hér má sjá kortið af gönguleiðinni


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 11. september 2024

Heitavatnslaust suđaustast í Grindavík

Fréttir / 8. september 2024

8. tbl. Grindvíkings komiđ út

Fréttir / 3. september 2024

Grindavíkurdćtur og glćpakviss

Fréttir / 2. september 2024

7. tbl. Grindvíkings komiđ út

Fréttir / 16. ágúst 2024

6. tbl. Grindvíkings komiđ út

Fréttir / 15. ágúst 2024

Mánudagskaffi í Reykjanesbć

Fréttir / 14. ágúst 2024

Stuđningur viđ fyrirtćki enn í bođi

Fréttir / 13. ágúst 2024

Atvinnulífiđ af stađ eftir sumarfrí

Fréttir / 12. ágúst 2024

Vel sótt námskeiđ hjá Dale Carnegie