Fundur 541

  • Bćjarstjórn
  • 31. maí 2023

541. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 30. maí 2023 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti, Birgitta H. Ramsay Káradóttir, aðalmaður, Hjálmar Hallgrímsson, aðalmaður, Helga Dís Jakobsdóttir, aðalmaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, aðalmaður og Gunnar Már Gunnarsson, aðalmaður. Einnig sátu fundinn: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Dagskrá:

1. Kjör forseta bæjarstjórnar og 1. og 2. varaforseta - 2205257
Til máls tók: Ásrún.

Forseti leggur til að eftirtalin verði kjörin til eins árs: Forseti bæjarstjórnar: Ásrún Helga Kristinsdóttir 1. varaforseti: Helga Dís Jakobsdóttir 2. varaforseti: Hallfríður Hólmgrímsdóttir

Samþykkt samhljóða.

2. Kosning í bæjarráð, sbr. 28. gr. og A lið 48. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar - 2205250
Til máls tók: Ásrún.

Forseti leggur til að eftirtalin verði kjörin í bæjarráð til eins árs: Aðalmenn: Hjálmar Hallgrímsson, formaður Helga Dís Jakobsdóttir, varaformaður Hallfríður Hólmgrímsdóttir Varamenn: Birgitta Káradóttir Sævar Þór Birgisson Birgitta Rán Friðfinnsdóttir Áheyrnarfulltrúi með málfrelsi og tillögurétt: Ásrún Helga Kristinsdóttir 

Samþykkt með 4 atkvæðum gegn 3 atkvæðum fulltrúa M-lista.

3. Ársuppgjör 2022 - Grindavíkurbær og stofnanir - 2303014
Til máls tók: Ásrún.

Síðari umræða um ársreikning 2022 Grindavíkurbæjar og stofnana og er hann lagður fram til samþykktar.

Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2022 er samþykktur samhljóða.

4. Siðareglur kjörinna fulltrúa Grindavíkurbæjar - 2304049
Til máls tók: Ásrún.

Lagðar fram uppfærðar siðareglur kjörinna fulltrúa Grindavíkurbæjar. Bæjarráð hefur tekið siðareglurnar fyrir á fundi sínum og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.

Siðareglurnar eru samþykktar samhljóða.

5. Hafnargata 13 - Eigandi Rauði krossinn - 2210035
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri og Hjálmar.

Fyrir liggur kauptilboð Grindavíkurbæjar í eignarhluta Rauða krossins að Hafnargötu 13. Tilboðið var undirritað með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar. Bæjarráð vísar tilboðinu til samþykktar í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða kauptilboðið og felur bæjarstjóra að ganga frá kaupsamningi og afsali.

6. Samþykkt um sorphirðu - 2305023
Til máls tók: Ásrún.

Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Grindavíkurbæ lögð fram til fyrri umræðu.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa samþykktinni til síðari umræðu.

7. Gjaldskrá sorphirðu - 2305024
Til máls tóku: Ásrún og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs í Grindavíkurbæ er lögð fyrir bæjarstjórn til samþykktar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs í Grindavíkurbæ.

8. Samþykkt um hænsnahald - 2108050
Til máls tók: Ásrún.

Lögð fram samþykkt um hænsnahald til annarrar umræðu bæjarstjórnar. HES tók samþykktina fyrir á 300. fundi sínum þann 4. maí 2023 og bókaði eftirfarandi: Nefndin fagnar frumkvæði Grindavíkur í þessum málum og hvetur önnur sveitarfélög á svæðinu til að setja sér sambærilega samþykkt.

Bæjarstjórn samþykkir samþykktina samhljóða.

9. Vinnuaðstaða starfsfólks á bókasafni í Hópsskóla - 2305039
Til máls tók: Ásrún.

Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2023 til kaupa á skrifstofuhúsgögnum fyrir starfsmann bókasafns í Hópsskóla að fjárhæð 550.000 kr. Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.

10. Beiðni um viðauka - Túngata - 2305058
Til máls tók: Ásrún.

Lögð fram beiðni um viðauka á fjárhagsáætlun sambýlis á Túngötu vegna ársins 2023. Viðaukinn snýr að tveimur þáttum. Annars vegar framlengingar á 50% stöðugildi frá 1. júlí til ársloka að fjárhæð 2.434.000 kr. Hins vegar er óskað eftir heimild til að breyta starfslýsingum starfsfólks til samræmis við aukið álag og auknar starfsskyldur en það leiðir af sér launaflokkahækkun. Bæjarráð samþykkir nýjar starfslýsingar sem halda gildi sínu á meðan þetta álagstímabil stendur yfir. Dagsetning nýrra starfslýsinga verði 1. maí 2023. Kostnaðarauki vegna þessa er 3.047.000 á árinu 2023. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2023 að fjárhæð 5.481.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.

11. Heimild til bæjarráðs til fullnaðarafgreiðslu mála í sumarleyfi bæjarstjórnar - 2305021
Til máls tók: Ásrún.

Með vísan til 8. gr. samþykkta um stjórn Grindavíkurkaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar leggur forseti til að fundir bæjarstjórnar verði felldir niður í júní og júlí í sumarleyfi bæjarstjórnar. Jafnframt að bæjarráði verði falin fullnaðarafgreiðsla mála, í samræmi við 33. gr. sömu samþykkta, nema þar sem lög kveða á um annað.

Samþykkt samhljóða.

12. Ungmennaráð Grindavíkur - Fundur með bæjarstjórn - 2304040
Ungmennaráð Grindavíkur mætti til fundarins, ásamt sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs og forstöðumanni Þrumunnar og leggja fyrir eftirfarandi dagsskrá til umræðu:

1. Yfirferð á verkefnum ársins 2022-2023 og farið stuttlega yfir hvað sé framundan 2. Nokkrir fulltrúar ráðsins taka til máls 2.1. Atvinnutækifæri ungmenna 2.2. Hvernig nýtist ungmennaráðið best 2.3. Þruman, ungmennahús og ungmennagarður 3. Svör bæjarfulltrúa 4. Opin umræða

13. Fundargerðir - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 2023 - 2302049
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Hrund og bæjarstjóri. Fundargerð 788. fundar stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum þann 12. apríl 2023 er lögð fram til kynningar.

14. Fundargerðir 2023 - Svæðisskipulag Suðurnesja - 2301125
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Hallfríður og Birgitta Hrund. Fundargerð 36. fundar Svæðisskipulags Suðurnesja þann 30. mars 2023 er lögð fram til kynningar.

15. Fundargerðir 2023 - Svæðisskipulag Suðurnesja - 2301125
Til máls tóku: Ásrún og bæjarstjóri. Fundargerð 37. fundar Svæðisskipulags Suðurnesja þann 4. maí 2023 er lögð fram til kynningar.

16. Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2023 - 2301117
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Hrund, Helga Dís og bæjarstjóri. Fundargerð 300. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja þann 4. maí 2023 lögð fram til kynningar.

17. Fundargerðir - Reykjanes Geopark 2023 - 2303018
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Birgitta Hrund og Hallfríður. Fundargerð 71. fundar Reykjanes jarðvangs ses þann 14. apríl 2023 er lögð fram til kynningar.

18. Bæjarráð Grindavíkur - 1642 - 2304020F
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður og Birgitta Hrund.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

19. Bæjarráð Grindavíkur - 1643 - 2305006F
Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Hrund, Hallfríður, Birgitta Rán og Gunnar Már.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

20. Bæjarráð Grindavíkur - 1644 - 2305011F
Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Hrund, bæjarstjóri, Hallfríður, Hjálmar, Gunnar Már og Birgitta Rán.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

21. Skipulagsnefnd - 119 - 2304022F
Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Hrund, Hjálmar, bæjarstjóri, Gunnar Már, Hallfríður, Helga Dís, og Birgitta Rán.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

22. Skipulagsnefnd - 120 - 2305007F
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri og Hjálmar.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

23. Fræðslunefnd - 131 - 2304017F
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Hrund, Birgitta Rán og Helga Dís.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

24. Frístunda- og menningarnefnd - 125 - 2304021F
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Helga Dís, Birgitta Hrund og bæjarstjóri. Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

25. Hafnarstjórn Grindavíkur - 489 - 2305001F
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Hallfríður, Helga Dís, bæjarstjóri og Gunnar Már.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

26. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 71 - 2304013F
Til máls tók: Ásrún.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

27. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 72 - 2305005F
Til máls tók: Ásrún.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

28. 50 ára afmælisnefnd Grindavíkurbæjar - 1 - 2304016F
Til máls tók: Ásrún. Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:40.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FUNDARGERĐIR

Skipulagsnefnd / 10. apríl 2024

Fundur 131

Bćjarstjórn / 4. apríl 2024

Fundur 562

Bćjarstjórn / 10. apríl 2024

Fundur 563

Bćjarstjórn / 26. mars 2024

Fundur 561

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Skipulagsnefnd / 21. febrúar 2024

Fundur 129

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Bćjarstjórn / 19. mars 2024

Fundur 560

Bćjarstjórn / 12. mars 2024

Fundur 559

Bćjarstjórn / 5. mars 2024

Bćjarstjórn / 20. febrúar 2024

Fundur 556

Bćjarstjórn / 13. febrúar 2024

Fundur 555

Bćjarstjórn / 8. febrúar 2024

Fundur 554

Bćjarstjórn / 30. janúar 2024

Fundur 553

Bćjarstjórn / 23. janúar 2024

Fundur 552

Bćjarstjórn / 16. janúar 2024

Fundur 551

Bćjarstjórn / 9. janúar 2024

Fundur bćjarstjórnar nr. 550

Bćjarstjórn / 29. desember 2023

Fundur bćjarstjórnar nr. 549

Bćjarstjórn / 27. desember 2023

Fundur bćjarstjórnar nr. 548

Bćjarráđ / 5. desember 2023

Fundur 1659

Bćjarstjórn / 28. nóvember 2023

Fundur 547

Bćjarráđ / 7. nóvember 2023

Fundur 1658

Bćjarstjórn / 31. október 2023

Fundur 544

Afgreiđslunefnd byggingamála / 17. október 2023

Fundur 78

Skipulagsnefnd / 16. október 2023

Fundur 127

Frćđslunefnd / 12. október 2023

Fundur 136

Frćđslunefnd / 21. september 2023

Fundur 135

Frćđslunefnd / 7. september 2023

Fundur 134