Byrjađ ađ dreifa nýjum tunnum

  • Fréttir
  • 26. maí 2023

Dreifing á nýjum tunnum er hafin og byrjaði Björgunarsveitin Þorbjörn að dreifa þriðju tunnunni í gær. Sú tunna er tvískipt og mun taka annars vegar við lífrænum úrgangi og hins vegar blönduðum.  

Eins og fyrr segir eru það björgunarsveitirnar á svæðinu sem munu sjá um dreifingu fyrir hönd Kölku. Við biðjum íbúa að taka vel á móti þeim og koma tunnunum vel fyrir við sín heimili.

Allar tunnur verða nú merktar þeim fjórum flokkum sem verður safnað héðan í frá. Við sérbýli verður græna tunnan fyrir plastumbúðir og sú gráa fyrir pappír / pappa  og munu merkingar á gömlu tunnurnar koma samhliða nýju tunnunum. Íbúar þurfa þó að hafa í huga að þar sem enn verður almennur úrgangur í gráu tunnunni verður pappír/ pappa og plastumbúðum áfram safnað í grænu tunnuna þangað til næsta tæming hefur átt sér stað.

Við hvetjum íbúa til þess að fylgjast með þegar gráa tunnan hefur verið tæmd og þrífa hana áður en hún verður nýtt fyrir pappa / pappír svo endurvinnsluefnið verði hreint og nothæft.
 

Samhliða nýjum tunnum verður körfum og bréfpokum einnig dreift til íbúa fyrir lífrænan eldhúsúrgang og er karfan sérstaklega ætluð inn í eldhús og hönnuð þannig að vel lofti um innihaldið.

Í fjölbýlishúsum verða körfur og pokar sett í stigaganga og eru íbúar hvattir til þess að sækja sér eina körfu og eitt pokabúnt.

Dreifingaráætlun (athugið að dagsetningar eru til viðmiðunar og gætu breyst þegar dreifing hefst) 

  • Grindavík | Áætlað er að dreifing hefjist 25.maí og verði lokið 8.júní
  • Suðurnesjabær – Sandgerði | Áætlað er að dreifing hefjist 26.maí og verði lokið 9.júní
  • Suðurnesjabær – Garður | Áætlað er að dreifing hefjist 27.maí og verði lokið 10.júní
  • Vogar | Áætlað er að dreifing hefjist 30.maí og verði lokið 
  • Reykjanesbær | Áætlað er að dreifing hefjist í byrjun júní. Nánari tímaáætlun eftir hverfum verður gefin út þegar nær dregur.


 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 28. september 2023

Hjáleiđ vegna viđgerđar á Víkurbraut

Fréttir / 27. september 2023

Upptaka af bćjarstjórnarfundi

Fréttir / 25. september 2023

Heilaheilsa í Kvikunni

Fréttir / 22. september 2023

Fjársjóđsleit Ţrumunnar 2023

Fréttir / 22. september 2023

Opin ćfing Grindavíkurdćtra

Fréttir / 21. september 2023

Laugardagsfundir xD aftur á dagskrá

Fréttir / 7. september 2023

Bingó framundan í Víđihlíđ

Fréttir / 15. september 2023

Lausar stöđur viđ Heilsuleikskólann Krók

Fréttir / 15. september 2023

Viltu vera međ í slökkviliđinu?

Fréttir / 15. september 2023

Sundlaugin lokuđ á mánudag frá 8:00-14:00

Fréttir / 14. september 2023

Hvernig á ađ halda upp á 50 ára afmćli?