Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra staðsetur skrifstofu sína víðs vegar um landið á kjörtímabilinu og nú er röðin komin að Grindavík.
Skrifstofa ráðherra verður í Grindavík á fimmtudaginn næsta, 23. febrúar. Opinn viðtalstími fer fram á bæjarskrifstofunum kl. 9:00 - 10:00
Frá því að nýtt háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti tók til starfa í febrúar hefur ráðuneytið verið opið fyrir störfum óháð staðsetningu. Í því felst að starfsemi ráðuneytisins er ekki bundin við einn ákveðin stað þrátt fyrir að aðalstarfsstöð þess sé staðsett í Reykjavík. Þannig geta starfsmenn ráðuneytisins unnið að heiman eða frá þeim stað á landinu sem best hentar hverju sinni. Ráðherra er þar engin undantekning og með því að staðsetja skrifstofu ráðherra um víðs vegar um landið gefst mikilvægt tækifæri til aukinnar tengslamyndunar og samstarfs við háskóla, stofnanir, fyrirtæki, sveitarfélög og einstaklinga um land allt.
Ráðherra hefur nú þegar staðsett skrifstofu sína í 10 mismunandi sveitarfélögum um land allt, en haustið 2022 vann ráðherra frá Snæfellsbæ, Mosfellsbæ, Árborg, Hafnarfirði, Akureyri, Reykjanesbæ, Ísafirði, Vestmannaeyjum, Akranesi og Múlaþingi.