70. fundur Afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmála haldinn á skrifstofu byggingafulltrúa, miðvikudaginn 15. febrúar 2023 og hófst hann kl. 13:00.
Fundinn sátu: Bjarni Rúnar Einarsson, byggingarfulltrúi, Hjörtur Már Gestsson, starfsmaður tæknisviðs, Atli Geir Júlíusson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Fundargerð ritaði: Bjarni Rúnar Einarsson, byggingarfulltrúi.
Dagskrá:
1. Spóahlíð 9 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2, - 2302030
Grindin ehf. sækir um byggingarleyfi á lóðinni Spóahlíð 9 skv. aðaluppdráttum frá JeES arkitektum dags 10.01.2023.
Byggingarleyfi synjað þar sem allir hlutar húss eru ekki innan byggingarreits.
2. Spóahlíð 5 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2, - 2302031
Grindin ehf. sækir um byggingarleyfi á lóðinni Spóahlíð 5 skv. aðaluppdráttum frá JeES arkitektum dags. 03.02.2023.
Byggingarleyfi synjað þar sem allir hlutar húss eru ekki innan byggingarreits.
3. Lóuhlíð 17-21 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2, - 2302032
Grindin ehf sækir um byggingarleyfi á lóðinni Lóuhlíð 17-21 skv. aðaluppdráttum frá JeES arkitektum dags. 02.02.2023.
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrðum 2.4.4.gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.
4. Mávahlíð 9-11 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2, - 2302039
Þórður Sölvason sækir um byggingarleyfi til byggingar parhúss skv. aðaluppdráttum frá Gunnari Sigtryggi Einarssyni dags. 08.02.2023
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrðum 2.4.4.gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.14:30.