Viltu finna milljón?

  • Fréttir
  • 6. febrúar 2023

Flest eigum við meiri peninga en við höldum en skortir aðeins tækin og tólin til að finna þá.

Af hverju að gefa fyrirtækjum út í bæ tugi ef ekki hundruð þúsunda af tekjunum okkar á hverju ári ef að við getum auðveldlega komist hjá því? Er ekki betra að njóta peninganna sjálf og nota þá í eitthvað sem veitir okkur ánægju?

Hrefna Sverrisdóttir, höfundur bókarinnar Viltu finna milljón? gefur góð ráð tengd fjármálum og sparnaði í Kvikunni í kvöld, mánudagskvöldið 6. febrúar kl. 20:00.

Öll velkomin!


Deildu ţessari frétt