Kynning á aðalskipulagsbreytingu – ÍB3 – þétting byggðar í Laut.

  • Skipulagssvið
  • 30. janúar 2023

Grindavíkurbær leggur fram vinnslutillögu að breytingu á Aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032 skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan er hér kynnt í samræmi við 2.mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 
Breytingin varða skilmálabreytingu fyrir íbúðarsvæði ÍB3 í töflu 1 í greinargerð aðalskipulagsins vegna þéttingar byggðar í Laut. Bætt er við heimild til að byggja par- og raðhús við Laut, alls 7 íbúðir, til viðbótar við þegar tilgreinda þéttingarreiti. 

Opið hús verður hjá skipulagfulltrúa á bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar, við Víkurbraut 62, fimmtudaginn 2. febrúar frá kl. 15.00 til 15.30, auk þess sem hægt er að sjá tillöguna hér:

Vinnslutillaga aðalskipulagsbreytingar – ÍB3

Að lokinni kynningu verður tillagan lögð fyrir  bæjarstjórn  til afgreiðslu fyrir auglýsingu. Á auglýsingatíma tillögunnar gefst hagsmunaaðilum og almenningi kostur á að skila inn formlegum athugasemdum og umsögnum. Á auglýsingartíma aðalskipulagsbreytingarinnar verður samhliða auglýst deiliskipulagstillaga fyrir Laut, til upplýsinga má finna hana hér að neðan. 

Greinargerð deiliskipulagstillögu fyrir Laut
Uppdráttur deiliskipulagstillögu fyrir Laut
 


Deildu þessari frétt

AÐRAR TILKYNNINGAR

Fréttir / 29. september 2023

Útboð vegna verkfræðihönnunar sundlaugar

Fréttir / 2. ágúst 2023

Starfsfólk óskast í heimaþjónustu

Fréttir / 15. júní 2023

Umferðaröryggistefna í kynningu

Skipulagssvið / 24. nóvember 2022

Deiliskipulag við Þorbjörn - auglýsing

Skipulagssvið / 31. maí 2022

Nýjar reglur um lóðarúthlutanir

Skipulagssvið / 13. maí 2022

Deiliskipulag fyrir Laut – auglýsing

Skipulagssvið / 2. mars 2022

Skyndilokun á köldu vatni

Fréttir / 16. febrúar 2022

Útboð: Útdraganlegir áhorfendabekkir

Fréttir / 2. desember 2021

Auglýsing um aðalskipulagsbreytingar

Höfnin / 8. nóvember 2021

Beðið eftir varahlutum