Skipulagslýsing fyrir 2. áfanga hverfisskipulags Hraun, Vör og Mánahverfi

  • Fréttir
  • 16. janúar 2023

Á 533. fundi bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar var skipulagslýsing fyrir 2. áfanga hverfisskipulags hjá sveitarfélaginu samþykkt og jafnframt að lýsingin yrði kynnt í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Svæði hverfisskipulagsins afmarkast af Hraunum og Vörum vestan Víkurbrautar og austan Víkurbrautar afmarkast skipulagssvæðið af Austurvegi, Mánagötu, Hafnargötu og Ægisgötu. 

Ekkert deiliskipulag er til fyrir þetta þegar byggða hverfi. Markmið Grindavíkurbæjar með skipulagsgerðinni er að móta heildarstefnu og samræma ákvæði innan hverfisskipulagssvæðisins til að einfalda afgreiðslu leyfisveitinga og gera þær markvissari. Tilgangurinn er að auðvelda ákvörðunarferli vegna framkvæmda og uppbyggingar á svæðinu. Einnig að sjálfbær þróun og hagsmunir íbúa verði ætíð hafðir að leiðarljósi við ákvarðanatöku.

Svæðið sem nú er fyrirhugað að skipuleggja er afmarkað með rauðri brotalínu á mynd 3 í skipulagslýsingunni. Skipulagssvæðið er um 42 hektarar að stærð og er í eigu Grindavíkurbæjar. 

Gefin er frestur til og með 2. febrúar 2023 til að skila umsögn/athugasemd. 

Umsagnir og/eða athugasemdir skal senda skriflega á netfangið atligeir@grindavik.is eða til Grindavíkurbæjar og merkja, Hverfisskipulag – 2. áfangi, Víkurbraut 62, 240 Grindavík.   

Hér má nálgast skipulagslýsingu hverfisskipulagsins á PDF formi. 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál