532. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 25. október 2022 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu: Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti, Birgitta H. Ramsay Káradóttir, aðalmaður, Hjálmar Hallgrímsson, aðalmaður, Helga Dís Jakobsdóttir, varaforseti, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, aðalmaður og Gunnar Már Gunnarsson, aðalmaður.
Einnig sat fundinn: Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
Í upphafi fundar fór forseti í stuttu máli yfir æviágrip og ritverk heiðursborgarans Guðbergs Bergssonar sem varð níræður þann 16. október síðastliðinn.
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar sendir Guðbergi heillaóskir vegna afmælisins og óskar honum velfarnaðar.
Dagskrá:
1. Aðalskipulag Grindavíkur- endurskoðun - 2209041
Til máls tók Ásrún.
Í samræmi við 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skal sveitarstjórn meta hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulag sveitarfélagsins innan tólf mánaða frá sveitarstjórnarkosningum. Skipulagsnefnd hefur tekið málið fyrir og sér ekki ástæðu til að fara í endurskoðun á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar. Bæjarráð tekur undir bókun skipulagsnefndar og vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
2. Deiliskipulag við Þorbjörn - 2110060
Til máls tóku: Ásrún og Hjálmar.
Deiliskipulagstillaga við Þorbjörn lögð fram til samþykktar í auglýsingu. Skipulagsnefnd samþykkir að skipulagstillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsnefnd vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samþykkt skipulagsnefndar.
3. Húsnæðisaðstæður skólaþjónustu, félagsþjónustu og barnaverndar - 2204050
Forseti vék af fundi við umræður og afgreiðslu málsins og fól Helgu Dís Jakobsdóttur varaforseta að taka við stjórn.
Til máls tóku: Helga Dís, Hjálmar og Hallfríður.
Lögð fram beiðni um viðauka vegna breytinga á aðstöðu félags- og skólaþjónustu. Óskað er eftir heimild til að nota af fjárheimild verkefnisins "Víkurbraut 62, breytingar á 3. hæð" í að laga núverandi aðstöðu félags- og skólaþjónustu kr. 10.000.000.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs með 6 atkvæðum.
4. Tónlistarskólinn - 50 ára afmæli - 2210034
Til máls tóku: Ásrún og Helga Dís.
Lagður fram tölvupóstur frá skólastjóra tónlistarskólans, dags. 10. okt. sl. varðandi 50 ára afmæli skólans. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka á árið 2022 að fjárhæð kr. 400.000 á bókhaldslykilinn 04511-4920 til að standa straum af afmælishátíð tónlistarskólans. Bæjarráð leggur til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.
5. Fjárhagsáætlun 2023-2026 - Grindavíkurbær og stofnanir - 2208066
Til máls tók Ásrún.
Forseti leggur til að áætluninni verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn þann 29. nóvember næstkomandi.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu forseta.
6. Fundargerðir - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 2022 - 2203041
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Rán, Hjálmar og Helga Dís.
Fundargerð 782. fundar dags. 12. október 2022 lögð fram til kynningar.
7. Bæjarráð Grindavíkur - 1623 - 2209029F
Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Hrund, Gunnar Már, Hallfríður, Hjálmar og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
8. Bæjarráð Grindavíkur - 1624 - 2210003F
Til máls tóku: Ásrún og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
9. Bæjarráð Grindavíkur - 1625 - 2210008F
Til máls tóku: Ásrún, Gunnar Már, Hjálmar, Hallfríður, Birgitta Hrund, Helga Dís, bæjarstjóri og Birgitta Rán.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
10. Skipulagsnefnd - 107 - 2210004F
Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Hrund, bæjarstjóri, Hjálmar, Hallfríður, Birgitta Rán, Helga Dís og Gunnar Már.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
11. Fræðslunefnd - 123 - 2209017F
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður og Birgitta Rán.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
12. Fræðslunefnd - 124 - 2209028F
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Hrund, Birgitta Rán, Hjálmar, Helga Dís, bæjarstjóri og Gunnar Már.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
13. Frístunda- og menningarnefnd - 119 - 2209030F
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Helga Dís, bæjarstjóri, Gunnar Már og Birgitta Hrund.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
14. Hafnarstjórn Grindavíkur - 485 - 2210007F
Til máls tóku: Ásrún, Gunnar Már og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:20