Tölvunámskeiđ í Kvikunni fyrir 60 ára og eldri

  • Fréttir
  • 25. september 2022

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum stendur fyrir námskeiðum í Kvikunni fyrir 60 ára og eldri þar sem kennt verður á snjalltæki s.s. spjaldtölvur og snjallsíma. Markmiðið er að efla tölvulæsi á snjalltæki, þ.e. þekkingu og færni í notkun rafrænna skilríkja og vefsíðna sem nauðsynlegt er að geta nýtt, s.s. heimabanka, netverslun, samfélagsmiðla, efnisveitur og notkun á tölvupóstum og öðrum rafrænum samskiptum. Námskeiðin eru þátttakendum að kostnaðarlausu.

Námsþættir:

  • Rafræn skilríki og síður sem flestir þurfa að geta sótt ( heilsuvera.is, skattur.is, o.fl. )
  • Heimabanki og netverslun ( millifærslur í heimabanka, reikningar, bókanir og pantanir á netinu með kreditkorti )
  • Samfélagsmiðlar og efnisveitur ( Facebook, Netflix, o.fl. )
  • Tölvupóstar og rafræn samskipti (Google)

Kennsluaðferðir og námsefni:

Kennslan verður einstaklingsmiðuð og því sniðin að þörfum hvers og eins en almenn atriði kynnt að hluta til fyrir alla á sama tíma. Kennsluefnið verður að hluta til rafrænt en einnig útprentuð gögn.

Tímasetning:

Námskeiðið er fjögur skipti, dagana 10., 11., 12. og 13. október frá kl. 10:00 - 12:00 eða kl. 13:00 - 15:00.

Leiðbeinendur:

Anna Albertsdóttir/Sólveig Friðriksdóttir

ATH: Aðeins eru 8 pláss á námskeiðinu - eftir það er tekið við skráningum á biðlista.

Skráning á námskeiðið fyrir hádegi fer fram hér

Skráning á námskeiðið eftir hádegi fer fram hér


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál

Fréttir / 27. mars 2024

Loftgćđi og mengun