Laus störf: Íţróttamannvirki Grindavíkurbćjar

  • Fréttir
  • 21. júlí 2022

Íþróttamannvirki Grindavíkurbæjar óskar eftir konum til að bætast í starfsmannahópinn. Í boði eru tvær stöður, annarvegar 62% starf og hinsvegar 82% starf. Unnið er á vöktum.

Íþróttamannvirkin er tilvalinn starfsvettvangur fyrir fólk sem vill vinna í fjörugu og skemmtilegu umhverfi. Starfið er fyrir þá sem hafa ánægju af því að umgangast börn og unglinga og þjónusta viðskiptavini á öllum aldri. Íþróttamannvirki Grindavíkurbæjar eru tveir íþróttasalir, sundlaug, fótboltavellir, hópið, Gym heilsa og aðstaða fyrir dans, pílu, júdó og taekwondo ásamt samkomu- og fundaraðstöðinni Gjánni. 62% starfið er aðalega kvöldvinna 14:00-22:00. 82% starfið er bæði morgunvaktir og kvöldvaktir. Morgunvaktin er 06:00-14:00 og kvöldvaktin er 14:00-22:00 og einnig er unnin fjórðahverja helgi.

Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 24. ágúst eða eftir samkomulagi.
 

Helstu verkefni og ábyrgð
•    Stuðla að því að gestir íþróttamannvirkjanna finni fyrir öryggi og ánægju með þjónustuna
•    Hjálpa börnum að upplifa sig velkominn og örugg í íþróttamannvirkjunum
•    Klefavarsla
•    Framfylgja öryggis- og umgengnisreglum
•    Þrif og minniháttar viðgerðir og viðhald
•    Aðstoða gesti eftir þörfum

Menntunar- og hæfniskröfur
•    20 ára eða eldri
•    Góð almenn menntun og reynsla sem nýtist í starfi 
•    Jákvætt viðhorf,góð  þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum 
•    Reynsla og ánægja að vinna með börnum og unglingum
•    Stundvísi 
•    Almenn tæknikunnátta æskileg
•    Reynsla af öryggismálum sundstaða kostur
•    Þátttaka á námskeiði í skyndihjálp og björgun úr laug ásamt því að standast hæfnispróf laugarvarða sbr. reglugerð fyrir sundstaði 
•    Hreint sakavottorð 
•    Laun eru samkvæmt kjarasamningi sambands íslenskra sveitarfélaga og starfsmannafélags Suðurnesja.

Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og stutt greinagerð um ástæður þess að viðkomandi vill starfa í íþróttamannvirkjum Grindavíkurbæjar.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhann Árni Ólafsson forstöðumaður Íþróttamannvirkja Grindavíkurbæjar joi@grindavik.is
 


Deildu ţessari frétt