Fundur 116

  • Frístunda- og menningarnefnd
  • 29. júní 2022

116. fundur frístunda- og menningarnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, mánudaginn 27. júní 2022 og hófst hann kl. 16:00.


Fundinn sátu: Sigríður Etna Marinósdóttir, formaður, Irmý Rós Þorsteinsdóttir, varaformaður, Viktor Guðberg Hauksson, aðalmaður, Hulda Kristín Smáradóttir, aðalmaður, Auður Arna Guðfinnsdóttir, aðalmaður og Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs

Fundargerð ritaði:  Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.

Dagskrá:

1.      Kynning á frístunda- og menningarsviði - 2206055
    Varamenn í frístunda- og menningarnefnd þau Anna Elísa Karsldóttir Long, Þórunn Erlingsdóttir og Petra Rós Ólafsdóttir sátu fundinn undir þessum lið. 

Sviðsstjóri kynnti starfsemi frístunda- og menningarsviðs. Einnig var farið yfir samþykkt fyrir frístunda- og menningarnefnd, samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar og siðareglur kjörinna fulltrúa Grindavíkurbæjar.
         
2.      Starfsáætlun frístunda- og menningarnefndar 2022-2026 - 2206093
    Rætt var um helstu verkefni frístunda- og menningarnefndar á kjörtímabilinu. Nefndin mun vinna starfsáætlun á fundi í haust. 
         
3.      Framtíð sundlaugarsvæðis - 2110014
    Um miðjan maí var leitað eftir hugmyndum frá íbúum vegna endurhönnunar sundlaugarsvæðisins. Hugmyndir íbúa lagðar fram. Sviðsstjóra falið að vinna úr innsendum hugmyndum og leggja fyrir nefndina á næsta fundi. 
         
4.      Sjóarinn síkáti 2022 - 2201045
    Sjóarinn síkáti fór fram 10.-12. júní sl. Hátíðin var vel sótt og gekk vel fyrir sig. Frístunda- og menningarnefnd þakkar öllum þeim sem komu að hátíðinni í ár fyrir sitt framlag. 
         
5.      Hátíðarhöld 17. júní 2022 - 2205009
    Rætt var um hvernig til tókst með hátíðarhöld í tengslum við 17. júní. 
         
6.      Strandblakvöllur í Grindavík - 2206088
    Lagt fram erindi frá grindvískum keppendum í strandblaki þar sem skorað er á sveitarfélagið að bæta aðstæður til strandblaks í Grindavík. Nefndin leggur til að erindið verði skoðað samhliða vinnu deiliskipulags fyrir íþróttasvæðið. 
         
7.      Skemmdir á innsiglingarvörðum af völdum jarðskjálfta - 2205265
    Gömlu innsiglingarvörðurnar í Grindavík liggja undir skemmdum vegna jarskjálfta. Nefndin felur sviðsstjóra að vinna málið áfram. 
         
8.      Umsókn um styrk vegna íþróttaafreka - 2205234
    Nökkvi Már Jónsson sækir um fræðslustyrk á grundvelli 7. gr. reglna um styrki vegna íþróttaafreka. Nefndin frestar afgreiðslu málsins og óskar eftir frekari gögnum. 
         
9.      Umsókn um styrk vegna íþróttaafreka - 2205161
    Þorleifur Ólafsson sækir um fræðslustyrk á grundvelli 7. gr. reglna um styrki vegna íþróttaafreka. Samþykkt að veita styrk að upphæð kr. 35.000. 
         
10.      Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023 - 2205104
    Grindavíkurkirkja sækir um starfsstyrk fyrir barna- og unglingastarf 2023-2026 í samræmi við verklagsreglur um úthlutun starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram. 
         
11.      Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023 - 2205232
    Pílufélag Grindavíkur sækir um starfsstyrk í samræmi við verklagsreglur um úthlutun starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram. 
         
12.      Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023 - 2205244
    Listvinafélag Grindavíkur sækir um starfsstyrk 2023-2025 í samræmi við verklagsreglur um úthlutun starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram. 
         
13.      Skil á upplýsingum vegna starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði - Unglingadeildin Hafbjörg - 2205222
    Innsend gögn frá Unglingadeildinni Hafbjörgu vegna starfsstyrks 2022 lögð fram.
         
14.      Skil á upplýsingum vegna starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði - Hestamannafélagið Brimfaxi - 2205013
    Innsend gögn frá Hestamannafélaginu Brimfaxa vegna starfsstyrks 2022 lögð fram.
         

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:15.
 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FUNDARGERĐIR

Bćjarstjórn / 17. apríl 2024

Fundur 564

Skipulagsnefnd / 10. apríl 2024

Fundur 131

Bćjarstjórn / 4. apríl 2024

Fundur 562

Bćjarstjórn / 10. apríl 2024

Fundur 563

Bćjarstjórn / 26. mars 2024

Fundur 561

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Skipulagsnefnd / 21. febrúar 2024

Fundur 129

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Bćjarstjórn / 19. mars 2024

Fundur 560

Bćjarstjórn / 12. mars 2024

Fundur 559

Bćjarstjórn / 5. mars 2024

Bćjarstjórn / 20. febrúar 2024

Fundur 556

Bćjarstjórn / 13. febrúar 2024

Fundur 555

Bćjarstjórn / 8. febrúar 2024

Fundur 554

Bćjarstjórn / 30. janúar 2024

Fundur 553

Bćjarstjórn / 23. janúar 2024

Fundur 552

Bćjarstjórn / 16. janúar 2024

Fundur 551

Bćjarstjórn / 9. janúar 2024

Fundur bćjarstjórnar nr. 550

Bćjarstjórn / 29. desember 2023

Fundur bćjarstjórnar nr. 549

Bćjarstjórn / 27. desember 2023

Fundur bćjarstjórnar nr. 548

Bćjarráđ / 5. desember 2023

Fundur 1659

Bćjarstjórn / 28. nóvember 2023

Fundur 547

Bćjarráđ / 7. nóvember 2023

Fundur 1658

Bćjarstjórn / 31. október 2023

Fundur 544

Afgreiđslunefnd byggingamála / 17. október 2023

Fundur 78

Skipulagsnefnd / 16. október 2023

Fundur 127

Frćđslunefnd / 12. október 2023

Fundur 136

Frćđslunefnd / 21. september 2023

Fundur 135