Fundur 1613

  • Bæjarráð
  • 24. júní 2022

1613. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 21. júní 2022 og hófst hann kl. 16:00.

Fundinn sátu: Hjálmar Hallgrímsson formaður, Helga Dís Jakobsdóttir var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Sævar Þór Birgisson varamaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir aðalmaður og Ásrún Helga Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi.
Einnig sat fundinn: Fannar Jónasson bæjarstjóri.

Fundargerð ritaði: Fannar Jónasson bæjarstjóri.

Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka á dagskrá mál með afbrigðum sem 6. mál: 2201007 - Fjárfesting 2022 - Stúka og tafla í nýjan íþróttasal. Samþykkt samhljóða.

Dagskrá:

1. Félagsaðstaða eldri borgara - hönnun og undirbúningur - 2102060

Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Staðan á hönnun og útboði vegna félagsaðstöðu eldri borgara við Víðihlíð lögð fram.

2. Framkvæmdir við æfingasvæði við golfvöll - 2206078

Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Framkvæmdir við æfingasvæði við golfvöll teknar til umræðu. Til að ljúka verkefninu og að sá í svæðið þarf aukið fjármagn sem áætlað er að nemi 5 milljónum króna. Bæjarráð samþykkir viðauka að fjárhæð 5.000.000 kr. sem verði fjármagnaður með lækkun á fjárfestingarverkefni nr. 32-110206, Ásabraut 2, klæðning að utan.

3. Viðgerð á stíg frá Grindavík vestur að golfvelli 2022 - 2205207

Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Verðtilboð frá verktaka í viðgerðir á hjóla- og göngustíg að golfvelli lagt fram. Bæjarráð samþykkir að hefja verkið og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.

4. Fráveita Grindavíkurbæjar - dælulögn frá Seljabót - 2201039

Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Tillaga að útfærslu til að bregðast við flóði á Miðgarði lögð fram til umræðu.

5. Gerðavellir 17-19, malarsvæði á lóð - 2206079

Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Óskað er heimildar bæjarráðs til að setja kantstein við lóðarmörk Gerðavalla 17-19 við Hólavelli og tyrfa svæðið fyrir innan. Bæjarráð samþykkir erindið. 

6. Fjárfesting 2022 - Stúka og tafla í nýjan íþróttasal - 2201007

Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Lagt er til að hafa sæti fyrir áhorfendur í allri stúkunni í nýja íþróttasalnum. Það felur í sér aukinn kostnað.

7. Uppfærð viðbragðsáætlun vegna eldgoss við Grindavík - 2206080

Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Uppfærð viðbragðsáætlun vegna eldgoss við Grindavík frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra lögð fram til upplýsinga.

8. Endurskoðun á systkinaafslætti - 2206070

Meirihlutinn tekur undir mikilvægi þess að endurskoða systkinaafslátt enda er kveðið á um slíkt í meirihlutasamningi B, D og U þar sem tekið er fram að markmiðið er að lækka gjöld til foreldra og aðlaga afslætti. Meirihlutinn er nú þegar með málið í vinnslu í samráði við sviðsstjóra og mun leggja málið fyrir þegar upplýsingar á faglegum grundvelli liggja fyrir.

9. Niðurgreiðsla til foreldrar barna yngri en 18 mánaða sem nýta sér þjónustu dagforeldra - 2206069

Málinu frestað og óskað eftir því að sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs mæti á næsta fund bæjarráðs.

10. Landskerfi bókasafna - Aðalfundur 2022 - 2206064

Lagt fram fundarboð aðalfundar Landskerfa bókasafna miðvikudaginn 29. júní 2022. Bæjarráð samþykkir samhljóða að Andrea Ævarsdóttir verði fulltrúi Grindavíkurbæjar á fundinum.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30


Deildu þessari frétt

AÐRAR FUNDARGERÐIR

Bæjarstjórn / 1. febrúar 2023

Fundur 537

Skipulagsnefnd / 31. janúar 2023

Fundur 113

Afgreiðslunefnd byggingamála / 19. janúar 2023

Fundur 69

Bæjarráð / 18. janúar 2023

Fundur 1633

Frístunda- og menningarnefnd / 12. janúar 2023

Fundur 122

Fræðslunefnd / 11. janúar 2023

Fundur 126

Bæjarráð / 11. janúar 2023

Fundur 1632

Bæjarstjórn / 11. janúar 2023

Fundur 536

Skipulagsnefnd / 10. janúar 2023

Fundur 112

Bæjarstjórn / 28. desember 2022

Fundur 535

Öldungaráð / 21. desember 2022

Fundur 13

Bæjarráð / 21. desember 2022

Fundur 1631

Skipulagsnefnd / 20. desember 2022

Fundur 111

Fræðslunefnd / 19. desember 2022

Fundur 125

Afgreiðslunefnd byggingamála / 16. desember 2022

Fundur 68

Bæjarstjórn / 14. desember 2022

Fundur 534

Hafnarstjórn / 13. desember 2022

Fundur 487

Öldungaráð / 13. desember 2022

Fundur 14

Skipulagsnefnd / 7. desember 2022

Fundur 110

Bæjarráð / 7. desember 2022

Fundur 1630

Bæjarstjórn / 1. desember 2022

Fundur 533

Bæjarráð / 23. nóvember 2022

Fundur 1629

Skipulagsnefnd / 22. nóvember 2022

Fundur 109

Afgreiðslunefnd byggingamála / 16. nóvember 2022

Fundur 67

Bæjarráð / 16. nóvember 2022

Fundur 1628

Bæjarráð / 10. nóvember 2022

Fundur 1627

Skipulagsnefnd / 8. nóvember 2022

Fundur 108

Frístunda- og menningarnefnd / 3. nóvember 2022

Fundur 120

Bæjarráð / 2. nóvember 2022

Fundur 1626

Fræðslunefnd / 27. október 2022

Fundur 124