Flaggađ gegn fordómum

  • Fréttir
  • 17. maí 2022

Í dag, 17. maí, er alþjóðlegur dagur gegn fordómum í garð hinsegin fólks. Í tilefni dagsins er regnbogafánanum víða flaggað í Grindavík í dag. Með því að flagga regnbogafánanum leggjumst við öll á eitt við að fagna fjölbreytileikanum og útrýma fordómum, í sama hvaða formi þeir birtast. 

Þennan dag árið 1990 tók Alþjóðaheilbrigðisstofnunin samkynhneigð af lista sínum yfir geðsjúkdóma. Fyrir þremur árum færði Alþjóðaheilbrigðisstofnunin flokkun tengda trans fólki frá geðsjúkdómum yfir í kafla um kynverund og heilsu. Á stuttum tíma hefur margt áunnist þegar litið er til lagalegrar og félagslegrar stöðu hinsegin fólks. Því miður er það þó svo að hinsegin fólk upplifir enn fordóma og mismunun. 

Grindavíkurbær samdi við Samtökin ’78 um aukna þjónustu við íbúa, starfsfólk Grindavíkurbæjar og nemendur í Grindavík árið 2020. Markmið samkomulagsins er að auka fræðslu um málefni hinsegin fólks á grunni jafnréttis og sjálfsagðra mannréttinda. Grindavíkurbær var aðeins þriðja sveitarfélagið til að ganga frá sambærilegum samningi við Samtökin ’78 og það fyrsta á landsbyggðinni.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!