Á dögunum komu í heimsókn á bæjarskrifstofurnar skólahópur leikskólans við Laut og kynntu sér gang mála í bæjarfélaginu. Þau skoðuðu starfsemi bæjarskrifstofunar ásamt því að sjá allar skrifstofurnar, fengu að kjósa og prufuðu að sitja í bæjarstjórastólnum. Meðal þess sem þau óska eftir er ný sundlaug, fleiri rólur, að bæta við æslabelg og stærri vatnsrennibraut en í Keflavík, með göngum.
Greinilega á ferðinni krakkar sem vita hvað þau vilja!