Óvissustig vegna jarđskjálftahrinu á Reykjanesskaga

  • Almannavarnir
  • 16. maí 2022

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum lýsir yfir óvissustigi Almannavarna vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga.  Aukin jarðskjálftavirkni hefur verið síðustu vikurnar og hafa skjálftar yfir 4 mælst um helgina. Íbúar eru hvattir til þess að huga að lausa- og innanstokksmunum sem geta fallið við jarðskjálfta og huga sérstaklega að því að ekki geti fallið lausamunir á fólk í svefni.  Veðurstofa Íslands hefur einnig vakið athygli á því að grjóthrun og skriður geti farið af stað í brattlendi og því er gott að sýna aðgát við brattar hlíðar

Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila. Á óvissustigi fara viðbragðsaðilar og stofnanir yfir áætlanir sínar og viðbúnað.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 20. mars 2025

Póstbox í Grindavík

Fréttir / 26. febrúar 2025

Ađalfundur Grindavík Experience

Fréttir / 24. febrúar 2025

Hér er íbúakönnun Maskínu

Fréttir / 20. febrúar 2025

Sundlaugin opin á laugardögum og mánudögum

Fréttir / 17. febrúar 2025

Um 80 hollvinasamningar

Fréttir / 14. febrúar 2025

Opnunartími sundlaugar