118. fundur Fræðslunefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, fimmtudaginn 7. apríl 2022 og hófst hann kl. 16:30.
Fundinn sátu:
Guðmundur Grétar Karlsson, formaður, Arna Björg Rúnarsdóttir, aðalmaður, Siggeir Fannar Ævarsson, aðalmaður, Sigurpáll Jóhannsson, varamaður, Guðbjörg Gerður Gylfadóttir, aðalmaður, Valdís Inga Kristinsdóttir, varam. áheyrnarfulltrúa, Fríða Egilsdóttir, leikskólastjóri, Eysteinn Þór Kristinsson, skólastjóri, Laufey Þórdís Sigurðardóttir, áheyrnarfulltrúi, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, áheyrnarfulltrúi, Eyrún Ösp Ottósdóttir, áheyrnarfulltrúi, Bylgja Héðinsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri
Fundargerð ritaði: Jóhanna Lilja Birgisdóttir, deildarstjóri skólaþjónustu.
Dagskrá:
1. Skólapúlsinn foreldrakönnun Krókur - 2204021
Formaður matsteymis skólans Björg Guðmundsdóttir Hammer kynnti niðurstöður foreldrakönnunar skólapúlsins vorið 2022.
2. Skólapúlsinn foreldrakönnun Laut - 2204022
Skólastjóri Leikskólans Laut kynnti niðurstöður foreldrakönnunar skólapúlsins vorið 2022.
3. Staða biðlista og fjöldi barna í leikskólum skólaárið 2022-2023 - 2204015
Lagt fram minnisblað leikskólaráðgjafa um fjölda barna á biðlista eftir leikskólaplássi ásamt tillögu skólastjórnenda um fjölda barna í hvorum skóla skólaárið 2022-2023. Heilsuleikskólinn Krókur verður með 108 börn og Leikskólinn Laut með 88 börn. Í ágúst verða öll börn 18 mánaða og eldri komin með leikskólapláss miðað við biðlistann í dag.
4. Staðan hjá dagforeldrum - 2204014
Lagt fram minnisblað frá leikskólafulltrúa um stöðu vistunarplássa hjá dagforeldrum í Grindavík. Líklegt þykir að öll börn undir 18 mánaða sem óski eftir því fái vistun hjá dagforeldrum. Útlit er fyrir að sex dagforeldrar verði starfandi næsta haust.
5. Skóladagatal Króks 2022-2023 - 2204023
Aðstoðarskólastjóri lagði fram skóladagatal 2022-2023 Heilsuleikskólans Króks. Fræðslunefnd frestar málinu til næsta fundar.
6. Lærdómssamfélagið - 2204013
Umræða um innleiðingu á starfsháttum lærdómssamfélagsins. Innleiðing hefur gengið hægar en gert var ráð fyrir vegna ýmissa áskorana síðastliðinn vetur. En vonir standa til um að hægt sé að taka verkefnið föstum tökum næsta vetur.
7. Skóladagatal Grunnskóla Grindavíkur 2022-2023 - 2204026
Skólastjóri lagði fram skóladagatal Grunnskóla Grindavíkur 2022-2023. Fræðslunefnd staðfestir skóladagatal grunnskólans með fyrirvara um samþykki skólaráðs.
8. Starfsaðstæður skólaþjónustu - 2204020
Umræður um starfsaðstæður skólaþjónustu. Fræðslunefnd telur þarft og nauðsynlegt að skólaþjónusta fái varanlegt húsnæði með góðum og viðunandi starfsaðstæðum. Leysa þarf húsnæðisvanda sem fyrst og nauðsynlegt að skoða stöðugildi samhliða vaxandi verkefnum, til að mynda vegna nýrra farsældarlaga og stækkandi bæjarfélags.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30.