1605. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 1. mars 2022 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu: Hjálmar Hallgrímsson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Birgitta H. Ramsay Káradóttir, varamaður. Sigurður Óli Þórleifsson, varaformaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, áheyrnarfulltrúi, Páll Valur Björnsson, áheyrnarfulltrúi, í gegnum Teams og Helga Dís Jakobsdóttir, aðalmaður.
Einnig sátu fundinn: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, í gegnum Teams og Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá:
1. Fjölþætt heilsuefling 65 - 2202089
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og forstöðumaður öldrunarþjónustu sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Janus Guðlaugsson íþrótta- og heilsufræðingur kynnti stöðuna eftir tveggja ára heilsueflingu meðal íbúa Grindavíkur.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með niðurstöður verkefnisins.
2. Styrkbeiðni frá körfuknattleiksdeild UMFG - 2202091
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um styrk til Körfuknattleiksdeildar UMFG vegna tekjutaps.
Bæjarráð bendir á að erindi eiga að koma frá aðalstjórn UMFG skv. gildandi samningi en ekki frá einstökum deildum. Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að svara erindinu og vinna málið áfram.
3. Framkvæmdir við Hópsskóla - 2. áfangi - 2202090
Málinu er frestað til næsta fundar.
4. Umsókn um leyfi fyrir rekstri á stöðvalausri deilileigu fyrir rafskútur - 2202085
Hopp ehf. óskar eftir leyfi til að reka stöðvalausa deilileigu á rafskútum í Grindavík.
Bæjarráð fagnar framtakinu.
5. Ársuppgjör 2021 - Grindavíkurbær og stofnanir - 2202053
Lagt fram áætlað rekstrar og sjóðstreymisyfirlit vegna ársins 2021. Mikill sjóðshalli er á félaginu og samþykkir bæjarráð að auka rekstrarframlag ársins 2021 um 28,2 milljónir umfram það sem þegar er í fjárhagsáætlun.
6. Almennt eftirlit á fjármálum sveitarfélaga á árinu 2022 - 2202078
Bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, dags. 21. febrúar 2022 lagt fram.
7. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - bókun stjórnar - 2202077
Lögð fram eftirfarandi bókun stjórnarfundar SSS sem haldinn var 16. febrúar sl.
"Lagt fram. Stjórn S.S.S. hvetur aðildarsveitarfélög sín til að skoða hvort þau geti aukið samvinnu við Vinnumálastofnun vegna atvinnuleitenda með skerta stafsgetu. Framkvæmdastjóra falið að áframsenda erindið til aðildarsveitarfélaga".
Bæjarráð tekur undir bókun SSS og mun halda áfram að taka þátt í þessu átaki hér eftir sem hingað til.
8. Lánasjóður sveitarfélaga - framboð til stjórnar - 2202060
Lagt fram erindi, dags. 11. febrúar sl., frá Stjórn Lánasjóðsins þar sem auglýst eftir framboðum til stjórnarsetu.
9. Tækifærisleyfi - Lionsklúbbur Grindavíkur - 2202076
Lögð fram beiðni um umsögn vegna umsóknar Lionsklúbbs Grindavíkur um leyfi til að halda kútmagakvöld í íþróttahúsinu 11. mars nk.
Bæjarráð mælir með veitingu leyfisins.
10. Lionshreyfingin á Íslandi - beiðni um fjárframlag - 2202092
Lionshreyfingin og Blindrafélagið hafa tekið höndum saman um átak til að tryggja framboð af leiðsöguhundum í landinu og óskar eftir fjárstuðningi til verkefnisins.
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 50.000 kr.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15.