100 daga hátíđ hjá 1.bekk

  • Grunnskólafréttir
  • 11. febrúar 2022

Föstudaginn 4. febrúar hélt 1. bekkur upp á að í þeirri viku voru börnin búin að vera 100 daga í grunnskóla. Að því tilefni var blásið til mikillar hátíðar í Hópskóla. Þennan dag mátti koma með frjálst nesti, leyst voru ýmis verkefni og farið í leiki tend tölunni 100. Búin voru til gleraugu úr tölunni 100, svo mátti teikna mynd af sér eins og þau líta út í dag og þegar þau verða 100 ára. Skemmtilegan dag enduðu svo krakkarnir í brekkunni við skólann og renndu sér á sleðum og snjóþotum. Það hefur verið gaman að fylgjast með þessum flotta hóp eflast og þroskast á þessum 100 skóladögum. 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál