1603. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 8. febrúar 2022 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu: Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Sigurður Óli Þórleifsson, varaformaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, áheyrnarfulltrúi, Páll Valur Björnsson, áheyrnarfulltrúi í gegnum fjarfundabúnað og Helga Dís Jakobsdóttir, aðalmaður. Einnig sátu fundinn: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá:
1. Málsverðir í Grunnskóla Grindavíkur - 2201097
Málinu var frestað á síðasta fundi bæjarráðs. Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Jón Axelsson frá Skólamat ehf var gestur fundarins í gegnum fjarfundabúnað.
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í kostnaði vegna matar eldri skólabarna í janúar 2022 og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs og bæjarstjóra að vinna málið áfram.
2. Leikskólagjöld vegna nemenda í sóttkví eða einangrun - 2201073
Málinu var frestað á síðasta fundi bæjarráðs. Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð hafnar því að foreldrar fái niðurfellingu leikskólagjalda þá daga sem börnin eru fjarverandi vegna sóttkvíar eða einangrunar.
3. Fasteignagjöld 2022 - 2107017
Niðurstaða álagningar fasteignagjalda fyrir árið 2022 er lögð fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:10.