Solander 250: Bréf frá Íslandi og Paradise Lost – Daniel Solander‘s Legacy

  • Kvikufréttir
  • 8. febrúar 2022

Í ár er þess minnst að 250 ár eru liðin frá einum fyrsta fyrsta erlenda vísindaleiðangrinum til Íslands, árið 1772. Með í þeirri för var einn af lærisveinum hins heimsþekkta sænska náttúruvísindamanns Carl von Linné, sænski náttúrufræðingurinn Daniel Solander. Solander og skrásettu m.a. ýmislegt um náttúru Íslands, menningu, siði og klæðaburð.

Í tilefni af því að 250 ár eru liðin frá ferðinni verður sett upp á Íslandi sýningin Solander 250: Bréf frá Íslandi. Tíu íslenskir grafíklistamenn túlka á sýningunni þessa atburði og þær breytingar sem hafa átt sér stað á landi og þjóð.

Á sama tíma verður sýningin Paradise Lost – Daniel Solander‘s Legacy opnuð. Þar sýna 10 listamenn frá Kyrrahafssvæðinu, en Solander var í áhöfn HMS Endeavour í fyrstu ferð Evrópumanna til Ástralíu. Sýningin hefur áður verið sett upp á NýjaSjálandi, í Ástralíu og Svíþjóð. Sýningarnar tvær mynda því einstakt samtal Norðurskautsins og Kyrrahafsins í gegnum ferðir Daniel Solanders. Sýningarnar tvær eru samstarfsverkefni Sendiráðs Svíþjóðar á Íslandi og félagsins Íslensk grafík.

Sýningarnar verða settar upp á nokkrum stöðum á Íslandi, þ.á.m. í Kvikunni í Grindavík í október 2023.

Þátttakendur í sýningunum eru:

Solander 250: Bréf frá Íslandi: Anna Líndal, Aðalheiður Valgeirsdóttir, Daði Guðbjörnsson, Gíslína Dögg Bjarkadóttir, Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Iréne Jensen, Laura Valentino, Soffía Sæmundsdóttir, Valgerður Björnsdóttirog Viktor Hannesson.

Paradise Lost - Daniel Solander’s Legacy: Sharnae Beardsley Dagmar Dyck, Tabatha Forbes, John McLean, Alexis Neal, Jo Ogier, Jenna Packer, John Pusateri, Lynn Taylor og Michel Tuffery

Myndin hér að ofan er verk Viktors Hannessonar, eitt þeirra verka sem sýnt verður á sýningunni.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!