Íbúđakjarninn viđ Túngötu 15-17: Starf ţroskaţjálfa eđa iđjuţjálfa

  • Fréttir
  • 17. janúar 2022

Íbúðakjarninn við Túngötu 15-17 óskar eftir iðjuþjálfa eða þroskaþjálfa í 50% starf frá og með janúar næstkomandi. Starfið er fjölbreytt og gefandi, krefst sjálfstæðis í starfi og fagmennsku. Starfið felur m.a. í sér samskipti við notendur þjónustu sem geta verið með krefjandi þarfir og þarfnast umönnunar og/eða þjálfunar frá starfsmanni. Starfsmaður veitir persónulegan stuðning og aðstoð við athafnir daglegs lífs og hefur áhrif á þau velferðarúrræði sem í boði eru, s.s. mat á þörf fyrir hjálpartæki o.fl. Veitir fræðslu til þjónustunotenda sem og samstarfsfólks. Starfsmaður væri staðgengill forstöðuþroskaþjálfa.

Menntun, hæfni og reynsla:
•    Starfsleyfi sem iðjuþjálfi/þroskaþjálfi
•    Góð samskiptahæfni
•    Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
•    Íslenskukunnátta

Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag (Iðjuþjálfafélag Íslands/Þroskaþjálfafélag Íslands.

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Hlín Sigurþórsdóttir í síma 426-9909 eða á netfanginu hlin.s@grindavik.is
Umsóknum með upplýsingum um starfsferil skal skilað rafrænt á netfangið hlin.s@grindavik.is 

Umsóknarfrestur er til og með 31. janúar næstkomandi.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun janúar.
 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál

Fréttir / 27. mars 2024

Loftgćđi og mengun