1601. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 11. janúar 2022 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Sigurður Óli Þórleifsson, varaformaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, áheyrnarfulltrúi, Páll Valur Björnsson, áheyrnarfulltrúi og Helga Dís Jakobsdóttir, aðalmaður. Einnig sátu fundinn: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá:
1. Fjárfesting 2022 - Stúka og tafla í nýjan íþróttasal - 2201007
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið. Á fjárfestingaráætlun ársins 2022 er gert ráð fyrir stúku og skjám í nýjan íþróttasal. Undirbúningur þessara verkefna er i gangi. Lögð fram hugmynd, ásamt kostnaðaráætlun, um að koma fyrir veggsvölum fyrir ofan stúkuna ásamt fjölmiðlastúku ofan við ritaraborð.
Bæjarráð samþykkir framlagðar hugmyndir.
2. Samstarf um undirbúning vegna breytinga á úrgangsmeðhöndlun - 2112470
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Lagt fram bréf frá SSS, dags. 17.12.2021 varðandi starfshóp á vegum Kölku í þeim tilgangi að greina þær breytingar sem kunna að verða á nærsamfélaginu í kjölfar laga sem tóku gildi 1. janúar sl. Þess er óskað að Grindavíkurbær skipi fulltrúa í starfshópinn.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skipa í starfshópinn.
3. Björgunarmiðstöð í Grindavík - hugmyndavinna - 2112412
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Lagður fram tölvupóstur frá björgunarsveitinni Þorbirni varðandi hugmyndir um sameiginlega björgunarmiðstöð í Grindavík.
Bæjarráð tekur vel í hugmyndina og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.
4. Fisktækniskóli Íslands - fjárframlög frá ríkinu - 2112064
Skólinn hefur fengið aukið fjárframlag til reksturs á fjárlögum 2022. Bæjarráð fagnar því að skólinn sé kominn með betri rekstrargrundvöll með auknu fjárframlagi frá ríkinu. Næstu skref eru að koma húsnæðismálum skólans í góðan farveg. Horft er til nýrrar viðbyggingar við Kvikuna að Hafnargötu 12a sem myndi tryggja skólanum húsnæði til framtíðar í Grindavík.
5. Rekstrarleyfi gististaðar í flokki IIG - Ingibjörg Jakobsdóttir - 2110035
Fyrir liggja umsagnir frá HES, Slökkviliði Grindavíkur og byggingarfulltrúanum í Grindavík.
Bæjarráð samþykkir veitingu leyfisins með þeim fyrirvara sem Slökkvilið Grindavíkur setur um útistandandi úrbætur og fresti.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:55.