Laust er til umsóknar starf aðstoðarmanns byggingarfulltrúa hjá skipulags- og umhverfissviði Grindavíkurbæjar. Aðstoðarmaðurinn starfar með byggingarfulltrúa við alla almenna meðferð byggingarmála samkvæmt lögum um mannvirki svo sem við yfirferð aðaluppdrátta, úttektir, samskipti við umsækjendur, hönnuði, stofnanir og fleira. Um er að ræða 100% starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Yfirferð teikninga og skráningartaflna
• Úttektir og eftirlit með byggingum og framkvæmdum
• Móttaka og afgreiðsla erinda sem embætti byggingarfulltrúa berast.
• Skráning í skjalakerfi Grindavíkurbæjar og gagnagrunn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunnar.
• Samskipti við hönnuði, byggingaraðila og íbúa
• Ýmis önnur verkefni sem tengjast skipulags- og umhverfissvið Grindavíkurbæjar.
Menntunar- og hæfniskröfur
• B.S/ M.S próf og löggildingu sem hönnuður, verkfræðingur, tæknifræðingur, arkitekt eða byggingafræðingur
• Autocad kunnátta æskileg
• Reynsla á sviði byggingarmála æskileg
• Þekking á lagaumhverfi málaflokksins æskileg
• Reynsla af stjórnsýslu og lagaumhverfi sveitarfélaga æskileg
• Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
• Góð samskiptahæfni og þjónustulund
• Góð almenn tölvukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Góð íslensku og ensku kunnátta
• Jákvætt viðhorf og geta til að vinna undir álagi
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið. Afrit af prófskírteini og leyfisbréfi þurfa að fylgja umsókn.
Umsóknarfrestur er til og með 21. janúar 2022.
Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað á netfangið atligeir@grindavik.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Allir áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar um starfið veita Bjarni Rúnar Einarsson, byggingarfulltrúi, í síma 420-1100 eða í gegnum tölvupóst: bygg@grindavik.is og Atli Geir Júlíusson, sviðsstjóri, í síma 420-1100 eða í gegnum tölvupóst: atligeir@grindavik.is