Starf félagsráđgjafa laust til umsóknar

  • Fréttir
  • 14. desember 2021

Félagsþjónustan í Grindavík auglýsir starf félagsráðgjafa laust til umsóknar. Um er að ræða 100% starf sem felur í sér verkefni á grundvelli barnaverndarlaga nr. 80/2002 og laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, auk annarra laga á sviði félagsþjónustu.

Til greina kemur að ráða starfsmann með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfinu. Viðkomandi starfsmaður þarf að geta hafið störf sem allra fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð: 
    Annast meðferð mála einstaklinga og fjölskyldna innan félagsþjónustu, þ.m.t. félagslega ráðgjöf og fjárhagsaðstoð
    Annast könnun og meðferð barnaverndarmála 
    Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu m.a. með skólum, leikskólum og öðrum þjónustustofnunum vegna málefna barna og fjölskyldna þeirra

Menntunar- og hæfniskröfur:
    Starfsréttindi í félagsráðgjöf eða viðkomandi fagi
    Þekking og reynsla af störfum í félagsþjónustu sveitarfélaga og/eða barnavernd er æskileg
    Góð alhliða tölvukunnátta er skilyrði. Þekking á OneSystem er kostur
    Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og áhugi og reynsla af teymisvinnu
    Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
    Jákvætt viðhorf og geta til að vinna undir álagi
    Gott vald á íslensku í ræðu og riti
    PMTO meðferðarmenntun er kostur

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands Íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. 

Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið. Afrit af prófskírteini og leyfisbréfi þurfa að fylgja umsókn. Umsóknarfrestur er til og með 4. janúar 2021.

Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað á netfangið nmj@grindavik.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Allir áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. 

Nánari upplýsingar gefa Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs (nmj@grindavik.is) og Thelma Björk Guðbjörnsdóttir, yfirfélagsráðgjafi (thelma@grindavik.is) í síma 420-1100.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir