Alli á Eyri segir grindvískar sögur í Kvikunni í kvöld, miðvikudaginn 24. nóvember, kl. 20:00. Alli er einstakur sagnamaður og rifjar upp sögur af fólki og viðburðum úr Grindavík eins og honum einum er lagið.
Í kvöld verður sagt frá alvarlegu sjóslysi og giftusamlegri björgun í veðurofsa við landtöku í Grindavík þann 14. mars 1926. Nokkrir ungir menn í Grindavík sýndu það frumkvæði síðast liðið sumar að endurnýja minningarstein í Kirkjugarðinum um þennan atburð.
Auk Alla taka til máls í kvöld Heiðar Hrafn Eiríksson, formaður sóknarnefndar Grindavíkurkirkju, Einar Hannes Harðarson, formaður Sjóma- og vélstjórafélags Grindavíkur og Bogi Adolfsson, formaður Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar. Ólafur Þ. Þorgeirsson sér um gítarspil og söng.
Aðgangur ókeypis og boðið upp á kaffi.