Fundur 521

  • Bćjarstjórn
  • 28. október 2021

521. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 26. október 2021 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Sigurður Óli Þórleifsson, forseti, Birgitta H. Ramsay Káradóttir, aðalmaður, Guðmundur L. Pálsson, aðalmaður, Hjálmar Hallgrímsson, aðalmaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Páll Valur Björnsson, aðalmaður. Helga Dís Jakobsdóttir var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Sævar Þór Birgisson,varamaður.

Einnig sátu fundinn: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri.

Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Dagskrá:

1. Svæðisskipulag Suðurnesja 2008-2024 - Endurskoðun - 2109140
Til máls tóku: Sigurður Óli og Guðmundur.

Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja óskar eftir umsögn um verk- og matslýsingu vegna endurskoðunar á Svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024 sbr. 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við verk- og matslýsinguna á fundi þann 21. október 2021. Afgreiðslu skipulagsnefndar var vísað til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulagsnefndar.

2. Deiliskipulagsbreyting - Orkuvinnslusvæði á Reykjanesi - 2012024
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Páll Valur, Hjálmar og bæjarstjóri.

Greinagerð og skipulagsuppdráttur deiliskipulagsbreytingar orkuvinnslu og iðnaðar á Reykjanesi lögð fram. Skipulagsnefnd samþykkti að deiliskipulagstillagan verði send í auglýsingu í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 á fundi þann 21. október 2021. Skiplagsnefnd vísaði erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulagsnefndar.

3. Deiliskipulag við Þorbjörn - 2110060
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, bæjarstjóri, Páll Valur, Hallfríður og Birgitta.

Skipulagslýsing vegna deiliskipulags fyrir Þorbjörn og svæðið í kring lögð fram. Málsmeðferð verður í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir skipulagslýsinguna og að um hana verði leitað umsagna hjá umsagnaraðilum og hún kynnt almenningi. Skipulagsnefnd vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulagsnefndar.

4. Reglur um lóðarúthlutanir- breyting - 2109032
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Hallfríður, Birgitta, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, bæjarstjóri, Páll Valur og Hjálmar.

Lagðar eru fram tillögur að breytingum á reglum um lóðarúthlutanir hjá Grindavíkurbæ. Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á fundi þann 21. október 2021 og samþykkti breytingar á lóðarúthlutunarreglunum. Skipulagnefnd vísaði erindinu til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.

Bæjarstjórn samþykkir reglurnar samhljóða.

5. Breytingar á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar - golfvöllur, stígur og hreinsivirki - 2110076
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Hallfríður og Hjálmar.

Tillaga að aðalskipulagsbreytingu vegna golfvallar, stígs vestan við Grindavík og hreinsivirkis við Eyjabakka lögð fram. Kynning og samráð um skipulagslýsingu fyrir skipulagstillöguna hefur farið fram í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þá hefur kynning á skipulagstillögunni farið fram í samræmi við bókun skipulagsnefndar á fundi þann 21. október sl. þar sem samþykkt var að kynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagalaga nr. 123/2010. Bæjarstjórn samþykkir samhljóða skipulagstillöguna. Í samræmi við 3. mgr. 30. gr skipulagslaga nr. 123/2010 þá er sviðsstjóra falið að senda skipulagstillöguna til athugunar hjá Skipulagsstofnun. Ef engar athugasemdir berast frá Skipulagsstofnun þá er sviðsstjóra falið að auglýsa tillöguna skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

6. Umsókn um byggingarleyfi - Víkurhóp 63 - 2110059
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Hallfríður, Hjálmar, Birgitta og bæjarstjóri.

Eignarhaldsfélagið Normi sækir um byggingarleyfi fyrir byggingu fjölbýlishúss við Víkurhóp 63. Skipulagsnefnd samþykkti byggingaráformin fyrir sitt leyti á fundi þann 21. október 2021 og vísaði erindinu til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu. Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulagsnefndar.

7. Norðurhóp 64 - Umsókn um byggingarleyfi - 2110054
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Hallfríður, Páll Valur, Hjálmar og bæjarstjóri.

H.H. Smíði ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi við Norðurhóp 64. Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin fyrir sitt leyti á fundi þann 21. október 2021 og var erindinu vísað til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulagsnefndar.

8. Búðir - Breyting á byggingarleyfi - 2109102
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Hallfríður og Hjálmar.

Grenndarkynning vegna breytingar á byggingarleyfi við Búðir lauk 21. október 2021. Engar athugasemdir bárust. Álit Minjastofnunar liggur fyrir án athugasemda. Skipulagsnefnd samþykkti byggingaráformin á fundi þann 21. október sl. og vísaði erindinu til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulagsnefndar.

9. Umsókn um byggingarleyfi - Fálkahlíð 2 (Nýr leikskóli) - 2110077
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Hallfríður og Birgitta. Grindavíkurbær sækir um byggingarleyfi fyrir nýjan leikskóla í Hlíðarhverfi við Fálkahlíð 2. Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin fyrir sex deilda leikskóla á fundi þann 21. október 2021. Erindinu er vísað til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulagsnefndar.

10. Skjalastefna Grindavíkur - 2106003
Til máls tóku: Sigurður Óli, Birgitta, Hallfríður og Páll Valur.

Skjalastefna Grindavíkurbæjar lögð fram til samþykktar. Bæjarráð samþykkti framlagða skjalastefnu og vísaði henni til samþykktar í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða skjalastefnuna.

11. Umsóknir um starfsstyrki á frístunda- og menningarsviði 2022 - 2106082
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, Páll Valur, Hjálmar, Birgitta, bæjarstjóri, Guðmundur, Sævar og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Drög að samstarfssamningum á frístunda- og menningarsviði við eftirtalda aðila lögð fram til samþykktar:

Félag eldri borgara í Grindavík. Golfklúbbur Grindavíkur. Grindavíkurskip. Hestamafélagið Brimfaxi. Íþróttafélagið Nes. Knattspyrnudeild UMFG. Knattspyrnufélagið GG. Kvenfélag Grindavíkur. Kvennakór Grindavíkur. Minja- og sögufélag Grindavíkur. Slysavarnardeildin Þórkatla. Unglingadeildin Hafbjörg.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða samninga.

12. Þjónustumiðstöð - beiðni um viðauka 2021 - 2110011
Til máls tók: Sigurður Óli.

Lögð fram beiðni um viðauka vegna viðhalds skólabifreiða að fjárhæð kr. 2.250.000 og kr. 3.000.000 á verkefni 32-1150515, Gatnakerfi: Gangbrautarljós í eignfærðri fjárfestingu 2021. Lagt er til að viðaukarnir verði fjármagnaðir með hækkun á áætlun staðgreiðslu, lykill 00010-0021 um kr. 5.250.000. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.

13. Fjárhagsáætlun 2022-2025 - Grindavíkurbær og stofnanir - 2107043
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, Guðmundur, Hjálmar, Birgitta, Páll Valur, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, bæjarstjóri og Sævar.

Forseti leggur til að áætluninni verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn þann 30. nóvember næstkomandi.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu forseta.

Fundargerðir  

14. Samband íslenskra sveitarfélaga 2021 - 2102009
Til máls tóku: Sigurður Óli, bæjarstjóri, Hallfríður, Guðmundur, Birgitta, Sævar, Páll Valur og Hjálmar.

Fundargerð 901. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags 24. september 2021 er lögð fram til kynningar.

15. Bæjarráð Grindavíkur - 1593 - 2110002F
Til máls tóku: Sigurður Óli, Hallfríður, Guðmundur, Birgitta og bæjarstjóri.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

16. Bæjarráð Grindavíkur - 1594 - 2110004F
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Páll Valur, Hallfríður, Sævar, Birgitta og Hjálmar.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

17. Bæjarráð Grindavíkur - 1595 - 2110009F
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, bæjarstjóri, Hallfríður, Páll Valur, Hjálmar, Sævar og Birgitta.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

18. Skipulagsnefnd - 91 - 2110008F
Til máls tóku: Sigurður Óli, Páll Valur, Hallfríður, Guðmundur, Birgitta, Hjálmar og bæjarstjóri.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

19. Fræðslunefnd - 113 - 2110003F
Til máls tóku: Sigurður Óli, bæjarstjóri, Guðmundur, Birgitta, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hallfríður, Hjálmar, Páll Valur og Sævar.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

20. Frístunda- og menningarnefnd - 108 - 2110001F
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Páll Valur, Birgitta, bæjarstjóri og Hallfríður.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

21. Afgreiðslunefnd byggingarmála - 54 - 2110007F
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Hallfríður, Páll Valur, Birgitta, Hjálmar og bæjarstjóri.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FUNDARGERĐIR

Bćjarstjórn / 17. apríl 2024

Fundur 564

Skipulagsnefnd / 10. apríl 2024

Fundur 131

Bćjarstjórn / 4. apríl 2024

Fundur 562

Bćjarstjórn / 10. apríl 2024

Fundur 563

Bćjarstjórn / 26. mars 2024

Fundur 561

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Skipulagsnefnd / 21. febrúar 2024

Fundur 129

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Bćjarstjórn / 19. mars 2024

Fundur 560

Bćjarstjórn / 12. mars 2024

Fundur 559

Bćjarstjórn / 5. mars 2024

Bćjarstjórn / 20. febrúar 2024

Fundur 556

Bćjarstjórn / 13. febrúar 2024

Fundur 555

Bćjarstjórn / 8. febrúar 2024

Fundur 554

Bćjarstjórn / 30. janúar 2024

Fundur 553

Bćjarstjórn / 23. janúar 2024

Fundur 552

Bćjarstjórn / 16. janúar 2024

Fundur 551

Bćjarstjórn / 9. janúar 2024

Fundur bćjarstjórnar nr. 550

Bćjarstjórn / 29. desember 2023

Fundur bćjarstjórnar nr. 549

Bćjarstjórn / 27. desember 2023

Fundur bćjarstjórnar nr. 548

Bćjarráđ / 5. desember 2023

Fundur 1659

Bćjarstjórn / 28. nóvember 2023

Fundur 547

Bćjarráđ / 7. nóvember 2023

Fundur 1658

Bćjarstjórn / 31. október 2023

Fundur 544

Afgreiđslunefnd byggingamála / 17. október 2023

Fundur 78

Skipulagsnefnd / 16. október 2023

Fundur 127

Frćđslunefnd / 12. október 2023

Fundur 136

Frćđslunefnd / 21. september 2023

Fundur 135