Atvinna - Laust starf viđ leikskólann Laut

  • Fréttir
  • 27. október 2021

Leikskólakennara vantar til starfa í leikskólanum Laut í Grindavík sem fyrst. Vinnutími frá kl. 08:00-16:00. Laun eru samkvæmt kjarasamningum leikskólakennara og sambands íslenskra sveitarfélaga.

Leikskólinn er fjögra deilda leikskóli fyrir börn frá 18 mánaða. Við erum ,,Skóli á grænni grein" og vinnum eftir Uppbyggingarstefnunni - Uppeldi til ábyrgðar. Gleði, hlýja og virðing, eru einkunnarorð skólans. Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimasíðu hans.

Hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
  • Færni í samskiptum.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

Vakin er athygli á því að ef ekki fæst leikskólakennari kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 420-1160 og 847-9859.

Umsóknir berist til leikskólastjóra á netfangið frida@grindavik.is

Endurnýja þarf eldri umsóknir. Umsóknarfrestur er til 30.okt 2021.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir