Laust starf viđ leikskólann Laut

  • Lautarfréttir
  • 26. október 2021

Atvinna - Laust starf við leikskólann Laut

Leikskólakennara vantar til starfa í leikskólanum Laut í Grindavík sem fyrst. Vinnutími frá kl. 08:00-16:00. Laun eru samkvæmt kjarasamningum leikskólakennara og sambands íslenskra sveitarfélaga.

Leikskólinn er fjögra deilda leikskóli fyrir börn frá 18 mánaða. Við erum ,,Skóli á grænni grein" og vinnum eftir Uppbyggingarstefnunni - Uppeldi til ábyrgðar. Gleði, hlýja og virðing, eru einkunnarorð skólans. Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimasíðu hans.

Hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg. 
- Færni í samskiptum. 
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður. 
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

Vakin er athygli á því að ef ekki fæst leikskólakennari kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 420-1160 og 847-9859. Umsóknir berist til leikskólastjóra á netfangið 
frida@grindavik.is



Endurnýja þarf eldri umsóknir.
Umsóknarfrestur er til 30.okt 2021


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir