Alls hlutu átján ný verkefni frumkvöðla, fyrirtækja, háskóla, stofnana í samstarfi við Matís styrk úr Matvælasjóði. Áherslur verkefnanna eru á aukna verðmætasköpun, sjálfbærni og samkeppnishæfni og taka þau m.a. til framleiðslu kjöts, grænmetis, ávaxta, saltfisks, hrognkelsa, karfa, próteinvinnslu, astaxanthins ríks lýsis, kornmetis, þangs í fóður, hrats úr bjórgerð, hraðvirkra tegundagreiningar á karfa, vistferilsgreiningu á íslenskum fiski, merkingar matvæla og umhverfisvænni umbúða um matvæli.
Eitt meginhlutverk Matvælarannsókna Íslands (Matís) er að styðja við nýsköpun í íslenskum matvæla- og líftækniiðnaði og er Matís að vinna að 120 rannsóknar- og þróunarverkefnum í samstarfi við fyrirtæki og stofnanir víðs vegar um landið þessa stundina.
Þrjú grindvísk fyrirtæki hlutu styrki til frekari þróunar á sinni vöru en það eru Þorbjörn hf, Vísir hf og Marine Collagen í samstarfi við önnur fyrirtæki. Eftirfarandi styrkir voru veittir til þessara fyrirtækja en hægt er að skoða listann í heild sinni hér.
Saltfiskur til framtíðar (Kelda). Samstarf Þorbjörns og Vísis í Grindavík, Matvæla- og næringarfræðideildar Háskóla Íslands og Matís. Markmið verkefnisins er að þróa og besta framleiðsluferli við útvötnun á saltfiski með það fyrir augum að flytja út tilbúna neysluvöru og ná þannig fram auknum virðisauka.
Nýting hrognkelsa (Kelda). Samstarf Arctic fish á Ísafirði, Marine Collagen í Grindavík Hafrannsóknastofnunar, Háskóla Íslands og Matís. Aðalmarkmið verkefnisins er að kanna nýtingamöguleika á hrognkelsum til gelatín og kollagen framleiðslu. Hrogn grásleppu eru í dag nýtt til kavíarframleiðslu og grásleppan eftir hrognatöku gjarna fryst til manneldis. Manneldismarkaðir fyrir frysta grásleppu hafa verið mjög sveiflukenndir og því felst mikið virði í því að finna fleiri nýtingarmöguleika á bæði grásleppu og rauðmaga.
Verðmæti í vinnsluvatni bolfiskvinnslu (Kelda). Samstarf Brims í Reykjavík, Vísis og Þorbjörns í Grindavík, Samherja á Akureyri og Matís. Markmið verkefnisins er að þróa verðmætar afurðir úr próteini í vinnsluvatni frá bolfiskvinnslu. Magn og eiginleikar próteina í vatni frá mismunandi vinnslutækjum verða kortlagðir að teknu tilliti til hráefnis, stillinga búnaðar o.s.frv. Lagt verður mat á hvort unnt sé að minnka próteintap og aðferðir þróaðar til að safna og vinna úr þessu hliðarhráefni vörur til manneldis.
Gæðabreytingar próteina við vinnslu þorsk- og karfaafurða (Kelda). Samstarf Vísis í Grindavík, Brims í Reykjavík, Matvæla- og næringarfræðideildar Háskóla Íslands og Matís Markmið verkefnisins er að rannsaka áhrif léttsöltunar og saltfisksvinnslu á gæði próteina í þorskafurðum sem og áhrifum frystingar og frystigeymslu á gæði próteina í karfaafurðum. Takmarkið er að öðlast betri skilning á áhrifum þessara vinnsluferla á prótein í sjávarafurðum og hvernig megi viðhalda stöðugum gæðum próteinanna m.t.t. eiginleika og lífvirkni í gegnum alla virðiskeðjuna, frá veiðum til neytenda.
Grindavíkurbær óskar fyrirtækjunum til hamingju með nýsköpunarstyrkina og um leið velfarnaðar með þróun verkefnanna.