Lokað verður fyrir umferð um Hópsbraut frá hringtorginu við Efrahóp og niður að Austurvegi frá og með mánudeginum 27.09.21 kl. 09:00 vegna vinnu við veitustofna í Hlíðarhverfið. Vegurinn mun opna aftur á föstudaginn 1. október næstkomandi.
Hægt verður að komast í Víðigerði gegnum Hópsbraut ef komið er frá Austurvegi.