1592. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 21. september 2021 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Sigurður Óli Þórleifsson, varaformaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, áheyrnarfulltrúi, Páll Valur Björnsson, áheyrnarfulltrúi og Helga Dís Jakobsdóttir, aðalmaður.
Einnig sátu fundinn:
Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá:
1. Gatnagerð - Malbikun í Þórkötlustaðahverfi - 2109097
Lögð fram áskorun íbúa og húsráðenda við Heimaland, Efraland, Búðir og Garðbæ í Þórkötlustaðahverfi um malbikun á veginum sem liggur að þeirra heimakeyrslum.
Bæjarráð vísar erindinu í vinnu við fjárhagsáætlun næsta árs.
2. Malbikun Norðuhóps - 2109089
HH Smíði óskar eftir því að Norðurhóp verði malbikað heim að lóðarmörkum Norðurhóps 62-64. Erindi þess eðlis lagt fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.
3. Daggæsla barna í heimahúsi - Staðan haust 2021 - 2105070
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Dagforeldrar óska eftir lækkun á leigu vegna Gerðarvalla 17 vegna þess að ekki tekst að fylla í daggæslupláss.
Bæjarráð samþykkir að gefa eftir leigu um allt að 160.000 kr. fram að áramótum.
4. Málaflokkur 02 - Beiðni um viðauka - 2109103
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Lögð er fram beiðni um viðauka í málaflokki 02 - Félagsþjónusta að fjárhæð 8.915.000 skv. framlagri sundurliðun.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að fjármögnun verði með lækkun annarra rekstrareininga innan málaflokksins og það sem upp á vantar verði fjármagnað með lækkun á handbæru fé.
5. Málaflokkur 04 - Beiðni um viðauka - 2109104
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Lögð er fram beiðni um viðauka í málaflokki 04 - Fræðsluþjónusta að fjárhæð 27.000.000 skv. framlagri sundurliðun. Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð frestar afgreiðslu og óskar frekari gagna.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00.