111. fundur Fræðslunefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, fimmtudaginn 2. september 2021 og hófst hann kl. 16:30.
Fundinn sátu:
Guðmundur Grétar Karlsson, formaður, Arna Björg Rúnarsdóttir, aðalmaður,
Siggeir Fannar Ævarsson, aðalmaður, Jóhanna Sævarsdóttir, aðalmaður,
Guðbjörg Gerður Gylfadóttir, aðalmaður, Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Valdís Inga Kristinsdóttir, varam. áheyrnarfulltrúa og Eysteinn Þór Kristinsson skólastjóri grunnskóla.
Fundargerð ritaði: Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Dagskrá:
1. Grunnskóli - Staðan í upphafi skólaárs 2021-2022 - 2108114
Eysteinn Þór Kristinsson, skólastjóri kynnir stöðuna við upphaf skólaárs. Skólastarf fer vel á stað og allar stöður innan skólans eru mannaðar. Nemendur eru á biðlista eftir þjónustu í Skólaseli þar til fleira starfsfólk hefur verið ráðið.
2. Nemendakönnun 1.-5.bekk 2020-2021 - 2108111
Niðurstöður nemendakönnunar í 1. - 5. bekk lagðar fram í fræðslunefnd.
3. Nemendakönnun 6.-10.bekkur - 2020-2021 - 2108110
Farið yfir nemendakönnun í 6. - 10. bekk skólaárið 2020 - 2021.
4. Hópskóli - framkvæmdir við 2.áfanga - 2109006
Arna Björg gerir nefndinni grein fyrir framvindu verksins en framkvæmdir ganga samkvæmt áætlun. Stefnt er að því að taka hluta af húsnæðinu í notkun á skólaárinu.
5. Sarfsáætlun fræðslunefndar 2021 - 2022 - 2108113
Lögð eru fram drög að starfsáætlun fræðslunefndar.
6. Umferðaröryggismál í Grindavík - 2103082
Nefndin samþykkir að taka málið fyrir með afbrigðum. Lögð eru fram drög að umferðaröryggisstefnu Grindavíkurbæjar. Nefndin fagnar framtakinu og ábendingum verður komið á framfæri við sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:40