Íþróttamannvirkin er tilvalinn starfsvettvangur fyrir fólk sem vill vinna í fjörugu og skemmtilegu umhverfi. Starfið er fyrir þá sem hafa ánægju af því að umgangast börn og unglinga og þjónusta viðskiptavini á öllum aldri.
Íþróttamannvirki Grindavíkurbæjar eru tveir íþróttasalir, sundlaug, fótboltavellir, hópið, Gym heilsa og aðstaða fyrir dans, pílu, júdó og taekwondo ásamt samkomu og fundaraðstöðinni Gjánni.
Í boði er 60% staða fyrir kvennmann. Vinnutíminn er önnur hver vika 07:45-15:45 á virkum dögum.
Umsóknarfrestur er til og með 13. september. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Stuðla að því að gestir íþróttamannvirkjanna finni fyrir öryggi og ánægju með þjónustuna.
• Hjálpa börnum að upplifa sig velkominn og örugg í íþróttamannvirkjunum.
• Klefavarsla
• Framfylgja öryggis- og umgengnisreglum.
• Þrif og minniháttar viðgerðir og viðhald.
• Aðstoða gesti eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
• 20 ára eða eldri
• Góð almenn menntun og reynsla sem nýtist í starfi
• Jákvætt viðhorf,góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
• Reynsla og ánægja að vinna með börnum og unglingum
• Stundvísi
• Almenn tæknikunnátta æskileg
• Reynsla af öryggismálum sundstaða kostur
• Þátttaka á námskeiði í skyndihjálp og björgun úr laug ásamt því að standast hæfnispróf laugarvarða sbr. reglugerð fyrir sundstaði
• Hreint sakavottorð
• Laun eru samkvæmt kjarasamningi sambands íslenskra sveitarfélaga og starfsmannafélags Suðurnesja.
Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og stutt greinagerð um ástæður þess að viðkomandi vill starfa í íþróttamannvirkjum Grindavíkurbæjar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhann Árni Ólafsson forstöðumaður Íþróttamannvirkja Grindavíkurbæjar joi@grindavik.is