Vel heppnađar smiđjur í Kvikunni

  • Kvikufréttir
  • 1. júlí 2021

Í sumar stendur Kvikan fyrir menningartengdum námskeiðum fyrir börn. Frábært hæfileikafólk hefur gengið til liðs við Kvikuna sem mun veita börnunum innsýn í nýja heima. 

Í júní var Ólöf Helga, starfsmaður Kvikunnar, með námskeið í fatahönnun en hún hefur lært fagið í LA.  Þátttakendur lærðu um strauma og stefnur í tísku, sníðagerð, teiknuðu flíkur og unnu að fatasamsettningum, gerðu "moodboard" og saumuðu flík, fræddust um mismunandi efni og hvernig þau eru teiknuð. 

Viðtökurnar voru frábærar, þátttakendur sátu lengi eftir að námskeiði lauk á daginn og héldu áfram að vinna verkefni tengd námskeiðinu. Framhaldsnámskeið verður vonandi í vetur. 

Viku síðar var svo hljóðfærasmiðja í umsjón eldri nemenda úr tónlistarskólanum í Grindavík. Smiðjan var samstarfsverkefni vinnuskóla, tónlistarskólans og Kvikunnar. Þátttakan var góð og má ættla að þar hafi vaknað áhugi á tónlistarnámi hjá mörgum þátttakenda. Við vonumst til að geta haldið áfram að bjóða upp á opnar tónlistarsmiðjur annað slagið. 

Trommur, trompet, ugulele, hljómborð, rafmagnshljóðfæri og fleira var í boði.

Stjörnuhópar af báðum leikskólum komu og fengu að prófa. Þeir höfðu misst af heimsókn í tónlistarskólann vegna covid og voru mjög ánægð með heimsóknina. Þau fengu líka krakka-leiðsögn um saltfisksýninguna og spiluðu bingo sem þau fylltu út. 

Öll þessi námskeið verða í boði fyrir börn fædd 2008-2012 og Kvikan tekur þátt í kostnaði þannig að þátttakendur greiða einungis 7500 fyrir hvert námskeið.

Bundnar eru vonir við að þetta geri flestum börnum kleift að taka þátt og stuðli þannig að áframhaldandi uppbyggingu á starfsemi í menningar- og listgreinum fyrir börn í Grindavík.

Skráning og nánari upplýsingar má nálgast í Kvikunni:

Sími: 420-1190 og í gegnum tölvupóst á kvikan@grindavik. 

Framundan eru söngnámskeið í umsjón Bertu Drafnar. Skráning á netfangið berta@berta og leiklistarnámskeið í umsjón Unnar Guðrúnar skráning á kvikan@grindavik
Sama gjald er og áður og kennt er í hópum. 

Stefnt er að því að vera með smiðjur fyrir krakka í haust en við flytjum fréttir af því þegar nær dregur. 

Fleiri myndir af fatahönnunarnámskeiði og hljóðfærasmiðju má finna á Facebook síðu bæjarins. 
 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 23. desember 2024

Jólakveđja frá bćjarstjórn

Fréttir / 18. desember 2024

Foreldranámskeiđ fyrir Grindvíkinga

Fréttir / 8. desember 2024

Samverustundir 8.-13. desember

Fréttir / 8. desember 2024

Jólaađstođ félagasamtaka í Grindavík

Tónlistaskólafréttir / 4. desember 2024

Jólatónleikar 7. desember 2024

Fréttir / 3. desember 2024

Jólabođ eldri borgara úr Grindavík