Fundur 1586

  • Bćjarráđ
  • 30. júní 2021

1586. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 29. júní 2021 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Sigurður Óli Þórleifsson, varaformaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, áheyrnarfulltrúi, Páll Valur Björnsson, áheyrnarfulltrúi og Helga Dís Jakobsdóttir, aðalmaður Einnig sat fundinn: Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Fannar Jónasson, bæjarstjóri.

Dagskrá:

1. Breytingar á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar - lýsing verkefnis - 2105074
Óskað er viðauka vegna hluta Grindavíkurbæjar í breytingu á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032 að upphæð 1.000.000 kr.

Bæjarráð samþykkir samhljóða viðauka við fjárhagsáætlun 2021 að fjárhæð 1.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.

2. Breyting á deiliskipulagi við Víðihlíð - 2102113
Auglýsingartíma á tillögu að breyttu deiliskipulagi við Víðihlíð er lokið, auglýsingartími var frá 6. maí 2021 til og með 17. júní 2021. Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, Minjastofnun Íslands, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja og HS veitum. Ein athugasemd barst og var hún frá Öldungaráði Grindavíkurbæjar. Þær viðbætur/breytingar sem voru gerðar við tillöguna eftir að auglýsingartíma lauk eru eftirfarandi: - Tengibygging á milli Víðihlíðar og félagsheimilisins má vera 2 hæðir. - Hámarkshæð félagsheimilis er breytt úr 7 m í 9 m frá botnplötu. - Heimilt verður að byggja tæknirými m.a. fyrir loftræstisamstæðu ofan á eða undir félagsheimili. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna að breyttu deiliskipulagi við Víðihlíð, með þeim breytingum sem hafa orðið á henni eftir auglýsingu, á fundi nefndarinnar þann 21. júní 2021. Tillögunni var vísað til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.

Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Víðihlíð eins og hún er hér lögð fram, með áorðnum minniháttar breytingum. Er skipulagsfulltrúa falið að senda deiliskipulagið til staðfestingar Skipulagsstofnunar í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þá er skipulagsfulltrúa falið að senda þeim er gerðu umsagnir og athugasemd við deiliskipulagið umsögn Grindavíkurbæjar um þær. Í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þá verður niðurstaða bæjarstjórnar auglýst.

3. Fráveita Grindavíkurbæjar - Dælustöð við Bakkalág - 2012003
Á fjárfestingaráætlun ársins 2021 er 2. áfangi við fráveituframkvæmdir sem hafa það markmið að setja upp hreinsistöð á fráveitu frá þéttbýli Grindavíkurbæjar. Niðurstöður verðfyrirspurna vegna 2. áfanga (dælustöð við Bakkalág 2) lagðar fram til kynningar.

4. Samningur slökkviliðs Grindavíkur og Slökkviliðs Höfuðborgarsv. um gagnkvæma aðstoð - 2105181
Samningur milli Slökkviliðs Grindavíkur og Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins um gagnkvæma aðstoð lagður fram til kynningar.

5. Samningur slökkviliðs Grindavíkur og brunavarnir Árnessýslu um gagnkvæma aðstoð - 2106131
Samningur milli Slökkviliðs Grindavíkur og Brunavarna Árnessýslu um gagnkvæma aðstoð lagður fram til kynningar.

6. Starfshópur um uppbyggingu eldgosasvæðisins í Geldingadölum - 2104055
Farið yfir stöðu mála vegna eldgossins í Geldingadölum.

7. Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2021 - 2102009
Fundargerð 898. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 28. maí 2021, er lögð fram til kynningar.

8. Skipulagsnefnd - 88 - 2106012F
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

9. Frístunda- og menningarnefnd - 105 - 2106008F
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

10. Afgreiðslunefnd byggingarmála - 51 - 2106011F
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FUNDARGERĐIR

Bćjarstjórn / 17. apríl 2024

Fundur 564

Skipulagsnefnd / 10. apríl 2024

Fundur 131

Bćjarstjórn / 4. apríl 2024

Fundur 562

Bćjarstjórn / 10. apríl 2024

Fundur 563

Bćjarstjórn / 26. mars 2024

Fundur 561

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Skipulagsnefnd / 21. febrúar 2024

Fundur 129

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Bćjarstjórn / 19. mars 2024

Fundur 560

Bćjarstjórn / 12. mars 2024

Fundur 559

Bćjarstjórn / 5. mars 2024

Bćjarstjórn / 20. febrúar 2024

Fundur 556

Bćjarstjórn / 13. febrúar 2024

Fundur 555

Bćjarstjórn / 8. febrúar 2024

Fundur 554

Bćjarstjórn / 30. janúar 2024

Fundur 553

Bćjarstjórn / 23. janúar 2024

Fundur 552

Bćjarstjórn / 16. janúar 2024

Fundur 551

Bćjarstjórn / 9. janúar 2024

Fundur bćjarstjórnar nr. 550

Bćjarstjórn / 29. desember 2023

Fundur bćjarstjórnar nr. 549

Bćjarstjórn / 27. desember 2023

Fundur bćjarstjórnar nr. 548

Bćjarráđ / 5. desember 2023

Fundur 1659

Bćjarstjórn / 28. nóvember 2023

Fundur 547

Bćjarráđ / 7. nóvember 2023

Fundur 1658

Bćjarstjórn / 31. október 2023

Fundur 544

Afgreiđslunefnd byggingamála / 17. október 2023

Fundur 78

Skipulagsnefnd / 16. október 2023

Fundur 127

Frćđslunefnd / 12. október 2023

Fundur 136

Frćđslunefnd / 21. september 2023

Fundur 135