Lífshćttulegt ađ stíga út á hrauniđ. Leiđ A er lokuđ.

  • Fréttir
  • 21. júní 2021

Í tilkynningu frá lögreglu er ítrekað að lífshættulegt sé að stíga út á hraunið. Mikilvægt sé því að fólk fari aldrei út á hraunið. Annars eru eftirfarandi upplýsingar nauðsynlegar fyrir alla þá sem hyggjast ganga upp að eldgosinu: 

Leið A upp að gosstöðvum er lokuð.  Fara þarf leið B sem er lengri og erfiðari og ekki fyrir óvana göngumenn. Ekki sést í eldtungur úr gígnum ef leið B er valin.Gangið frekar suður fyrir Borgarfjall og inn að Nátthaga og lítið þar rennandi hraunið augum.  

Gossvæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða.  Lögregla getur án fyrirvara lokað fyrir alla umferð inn að gosstöðvunum.   
 
Förum ekki með börn (6 ára og yngri) að gosstöðvunum ef hætta er á gasmengun.  Ekki er ráðlegt að börn dvelji lengur en 15 mínútur á stað þar sem loftmengun er yfir heilsuverndarmörkum.  Leitum upplýsinga um loftgæði á svæðinu áður en gengið er af stað.   
 
Bílastæði: 
Bannað er að leggja ökutækjum á og við Suðurstrandarveg. Leggja skal bílum á skipulögðum stæðum á grasflötum við veginn en aðkoma að bílastæðum er bæði úr austri og vestri. 
 
Gönguleið
Áætla má að gangan taki 3-4 klst. fram og til baka fyrir meðalvant göngufólk. Gönguleiðin er stikuð og greinileg en hefur reynst mörgum erfið. Nauðsynlegt er að vera í góðum gönguskóm og öðrum útivistarfatnaði.
Á safetravel.is eru upplýsingar um stöðuna hverju sinni uppfærðar reglulega yfir daginn.  Vakin er athygli á gönguleið að útsýnisstað hefur verið breytt vegna hraunflæðis.
 
Loftmengun
Yfirborðsmengun getur verið í jarðvegi, snjó og yfirborðsvatni vegna þungmálma og uppsöfnunar flúors (F).  Mengun er mest í næsta nágrenni við gosstöðina.  Vegna loftmengunar er ekki ráðlagt að dvelja lengi við gosstöðvarnar. Börnum, öldruðum, barnshafandi konum og þeim sem hafa undirliggjandi hjarta- og lungnasjúkdóma er ráðlagt frá því að fara á gosstöðvarnar ef einhver loftmengun er yfirvofandi.
 
Spá veðurvaktar um veður og gasdreifngu í dag og á morgun:
unnan 13-18 m/s og rigning svo gasið berst til norðurs og gæti mælst á Vatnsleysuströnd, þó í litlu magni í svo hvössum vindi. Suðvestan 5-10 í nótt og skúrir eða dálítil súld. 

Vestanátt á morgun en norðvestan 3-8 annað kvöld. Gas berst þá til austurs og suðausturs frá gosinu.

Áætlun viðbragðsaðila sem gæti breyst án fyrirvara:
•    Frá miðnætti og fram eftir degi eru engir viðbragðsaðilar á svæðinu til að mæla gasmengun og bregðast við óhöppum. 
•    Gossvæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða.  Lögregla getur án fyrirvara lokað fyrir alla umferð inn að gosstöðvunum.  
•    Búast má við gasmengun vegna eldgoss á Reykjanesi og er fólk hvatt til að fylgjast með loftgæðamælingum á loftgaedi.is og leiðbeiningum frá Almannavörnum.
•    Gasmengun við gosstöðvarnar getur alltaf farið yfir hættumörk, mökkurinn leggst undan vindi og því öruggast að horfa til eldstöðva með vindinn í bakið.
•    Í hægviðri (<5 m/s) getur gas safnast fyrir, þá stjórnast vindafar af landslagi og gas getur verið yfir hættumörkum langt upp í hlíðar. Í slíkum tilfellum þurfa áhorfendur að færa sig upp á fjöll og hryggi.
•    Velja þarf gönguleið eftir vindaspá hverju sinni.
•    Forðast skal að taka hunda með sér að gosstöðvunum. Hundar eru útsettari fyrir mengun vegna gass þar sem þeir eru nær jörðu. Einnig getur flúor leynst í pollum sem hundar drekka úr.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 23. desember 2024

Jólakveđja frá bćjarstjórn

Fréttir / 18. desember 2024

Foreldranámskeiđ fyrir Grindvíkinga

Fréttir / 8. desember 2024

Samverustundir 8.-13. desember

Fréttir / 8. desember 2024

Jólaađstođ félagasamtaka í Grindavík

Tónlistaskólafréttir / 4. desember 2024

Jólatónleikar 7. desember 2024

Fréttir / 3. desember 2024

Jólabođ eldri borgara úr Grindavík