Umsjónarkennari í 80 - 100% starf á miðstig.
Umsóknarfrestur er til 23. júní en ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2021.
Við leitum að einstaklingi með réttindi til kennslu í grunnskóla sem er metnaðarfullur, góður í mannlegum samskiptum, með skipulagshæfileika, er sveigjanlegur og tilbúinn að leita nýrra leiða í skólastarfi. Skólinn vinnur í anda Uppeldi til ábyrgðar.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknir skulu berast Grunnskóla Grindavíkur Ásabraut 2, 240 Grindavík eða sendist á netfangið gudbjorgms@grindavik.is
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg M. Sveinsdóttir skólastjóri í síma 420-1200.