Sjómannadagshelgin 2021 - Dagskrá laugardagsins 5. júní

  • Sjóarinn síkáti
  • 5. júní 2021

Grindvíkingar gera sér glaðan dag í tilefni af sjómannadeginum um helgina. Í dag, laugardag, hittist yngsta kynslóðin í Hreystigarðinum við íþróttahúsið en á morgun, á sjálfan sjómannadaginn, fer fram hátíðardagskrá í Grindavíkurkirkju og við minnisvarðann Vonina. Dagskráin í dag er eftirfarandi:

LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ

14:00-15:30 SKEMMTIDAGSKRÁ Í HREYSTIGARÐINUM
Komið verður upp sviði í Hreystigarðinum þar sem skemmtikraftar munu skemmta yngstu kynslóðinni milli kl. 14:00 og 15:30. Fram koma Glappakast, Latibær og Söngvaborg. Dregið verður í hurðaleiknum á sviðinu. 

Sprell.is munu setja upp leiktæki við Volcano hótel (gamla Festi) ef veður leyfir laugardag og sunnudag. Tilboð á miðum í leiktæki alla helgina. Athugið að leiktækin eru ekki á vegum Grindavíkurbæjar.

Veitingastaðir í Grindavík verða að sjálfsögðu opnir alla helgina. Sjómannalögin verða flutt á Bryggjunni milli kl. 15 og 17. Jógvan spilar fyrir gesti á Festi bistro. Þá verða óskalög vélstjóra flutt á Fish house milli kl. 21 og 23. Hljómsveitin Rattatti spilar á Salthúsinu milli kl. 21:00 og 24:00. 

SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ

8:00 FÁNAR DREGNIR AÐ HÚNI
Fánar dregnir að húni og bæjarbúar hvattir til að flagga í tilefni sjómannadagsins.

14:00 SJÓMANNADAGSMESSA Í GRINDAVÍKURKIRKJU
Kór Grindavíkurkirkju leiðir sönginn undir stjórn Erlu Rutar Káradóttur organista.
Sr. Elínborg Gísladóttir þjónar fyrir altari
Einsöngur: Páll Jóhannesson
Ræðumaður: Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavik
Sjómannsfjölskylda les ritningarlestra ásamt því að vera kransaberar.

Að lokinni messu fer fram heiðrun sjómanna í kirkjunni. Að heiðrun lokinni mun forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhannesson flytja ávarp.

Fyrir framan kirkjuna fer fram blessun á björgunarbátnum Árna í Tungu. Þá verður gengið að Von þar sem lagður verður blómsveigur til minningar um drukknaða sjómenn. Þar munu Grindavíkurdætur syngja nokkur lög undir stjórn Bertu Drafnar Ómarsdóttur.

Hægt verður að fylgjast með messunni í beinu streymi heimasíðu og facebooksíðu Grindavíkurbæjar.

13:00-17:00 VELTIBÍLLINN
Hinn sívinsæli veltibíll verður í Hreystigarðinum við íþróttahúsið.

Gestir eru minntir á að virða sóttvarnarreglur og nota grímur þar sem ekki er hægt að tryggja eins metra fjarlægð. 

Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. desember 2025

Firmamót knattspyrnudeildar UMFG

Fréttir / 5. desember 2025

Samverustundir í Grindavíkurkirkju

Fréttir / 26. nóvember 2025

Pálínu-Jólabođ FEB Grindavík

Fréttir / 21. nóvember 2025

Fjörugur föstudagur - Dagskrá

Fréttir / 16. nóvember 2025

Konukvöld KVAN fyrir konur úr Grindavík

Fréttir / 14. nóvember 2025

Niđurrif altjónshúsa í Grindavík

Fréttir / 14. nóvember 2025

Grindavík Committee Announcement

Fréttir / 11. nóvember 2025

Jólasamverustund í Grindavíkurkirkju

Fréttir / 11. nóvember 2025

33 úr Grindavík fengu styrk úr Sóknarsjóđi

Fréttir / 31. október 2025

Allra heilagra messa í Grindavíkurkirkju